Allir eiga að njóta heilsufrelsis


Edda Heiðrún Backman, leikstjóri og verslunareigandi, er einlægur talsmaður heilsufrelsis. Það eiga allir að njóta heilsufrelsis, segir hún, en hún tók málin í eigin hendur, hafnaði lyfjum en bjó sér lífsgæði úr blöndu af hefðbundnum og óhefðbundnum meðferðum, sem hún stundar enn. Kosturinn við óhefðbundnu meðferðirnar, segir hún, er að þær hvetja þig til þess að horfast í augu við sjálfan þig og taka ábyrgð á heilsunni.
Mínar aðstæður eru svolítið sérstakar af því að ég er haldin ólæknandi sjúkdómi, segir hún, en fyrir fimm árum greindist hún með MND. Henni var strax boðið upp á lyf, en það slævði öndunina og eftir hálft ár ákvað hún að hætta á lyfjum og fara yfir í óhefðbundnar meðferðir. “Ég var eiginlega aldrei með sjálfri mér þegar ég tók þessi lyf og þótt þau kostuðu tugi þúsunda á mánuði, þá gátu þau ekki bjargað lífi mínu.”

Edda segist hafa breytt um fæði, farið í heilun og nudd, höfuðbeina- og spjaldhryggsjöfnun, æfingar og líkamsrækt. “ Óhefðbundnar meðferðir hjálpuðu mér til að losna við hræðsluna og komast í gegnum hlutina á vissan raunsæishátt og umfram allt allsgáð. Þau gáfu mér nýja lífssýn, nýtt tækifæri til þess að uppgötva nýjar hliðar á sjálfri mér. Það er ekki það alversta að vera með MND, það er ýmislegt verra til í heiminum. En umfram allt er mér fært að njóta vissra lífsgæða og það þakka ég því að ég skyldi taka málin í eigin hendur. Án þess byggi ég áreiðanlega við minni lífsgæði, hvað ég tala nú ekki um ef ég væri meira og minna út úr heiminum af lyfjaáti.”

Edda segir að henni standi til boða rándýr lyf, en hins vegar enginn fjárhagslegur stuðningur, þegar að óhefðbundnu meðferðunum kemur. “Þetta finnst mér himinhrópandi óréttlæti, því óhefðbundnu meðferðirnar hjálpa mér verulega, þar sem hefðbundnar meðferðir duga lítt. Mér finnst að ég ætti að fá að búa við það heilsufrelsi að mega velja meðferðir og fá ekki minni fjárhagslegan stuðning við að halda mér á floti og allsgáðri en það kostaði kerfið að hafa mig í stöðugri lyfjavímu.”
“Ég hef satt að segja verið að velta því fyrir mér að stunda peningaþvætti hér í búðinni og selja bara þessi lyf sem mér standa svo auðveldlega til boða!,” bætir hún hlæjandi við.

“Heilsufrelsi stuðlar að því að fólk taki ábyrgð á sinni heilsu og öll sjálfsrækt stuðlar að meiri lífsgæðum. Ég tel að nú séu ýmis sóknarfæri fyrir óhefðbundnar meðferðir til þess að kenna fólki á sjálft sig og hjálpa því til betri heilsu. Og ekki bara óhefðbundnar meðferðir. Þeir sem starfa í heilbrigðiskerfinu verða líka að opna augun fyrir takmörkunum þess og því góða sem aðrar meðferðir bjóða upp á. Samstarf og sambland hefðbundinna og óhefðbundinna meðferða verður að komast á og um leið frelsi fyrir fólk til þess að velja.

Ég á mér draum um alheimsheilsumiðstöð þar sem fólk getur valið til dæmis út frá trúabrögðum og mataræði sína sjálfsmeðferð. Við verðum að læra að bera virðingu fyrir líkama okkar; þessu eina farartæki sem okkur er fengið. Í þessari alheimsheilsumiðstöð sé ég fyrir mér stofnfrumubanka, sem fólk gæti lagt inn í og fengið í staðinn úttekt og upplýsingar um hvað það getur gert til að bæta heilsu sína.

Heldurðu að það væri ekki meira vit að setja svona heilsumiðstöð niður á Vestfjörðum heldur en olíuhreinsunarstöð?

© Heilsuhöndin 2008

Til baka

Póstlisti
Skráðu netfang þitt hér að neðan
 

Elementin fimm

Lifrin nærir vöðva og vöðvar styrkja hjarta. Lifrin stjórnar augum, sjónin.
Hjarta nærir blóðið sem lífgar magaorkuna. Hjarta stjórnar tungunni.
Magi styrkir holdið og holdið ver lungun.
Maginn stjórnar munninum.
Lungun styrkja húð og hár sem svo verja nýrun.
Lungu stjórna nefi.
Nýrun styrkja bein og merg sem svo styrkja lifur.
Nýrun stjórna eyrum.