Essíak stuðlar að bættum frumuvexti og styrkir ónæmiskerfi líkamansRáðlagt er að taka seyðið 1 – 2 á dag. Takið tveim tímum fyrir eða tveim tímum eftir máltíð. Bestur árangur næst ef tekið strax á morgnana og á kvöldin fyrir svefn. Notið 1/2 bolla (60 ml) af seyðinu í hvert skipti, ágætt er að blanda það með heitu vatni. Drekkið jurtseyðið samkvæmt leiðbeiningum og leitið ráða hjá heilsufarsráðgjafa, lækni eða næringarfræðingi
Essíak jurtaseyðið hefur bætt heilsu margra það hefur jákvæð og uppbyggjandi áhrif á frumur líkamans, styrkir ónæmiskerfið og stuðlar að jafnvægi í líkamanum. Þessir þættir gera það að verkum að margir sjúkdómar geta “dregið sig til hlés”. Í þeim ritum og rannsóknum, sem gerðar hafa verið á jurtablöndunni og þeim sem hana nota, eru nefndir sjúkdómar eins og krabbamein af ýmsum toga og eftirmeðferðir t.d. eftir geislun og lyfjameðferð, eyðni sjúklingar telja sig hafa fengið bata (sbr. rannsókn Dr. Gary Glum við AIDS stofnunina í Los Angeles 1994). Alzheimer's sjúklingar hafa sagt frá að neikvæðir þættir hafi stöðvast. Síþreyta, sykursýki, MS og Lupus sjúklingar hafa fengið bót að einhverju eða öllu leyti. Við rannsóknir hefur eftirfarandi komið fram;
1. Jafnar kolesteról styrk með því að breyta fitu og sykri í orku.
2. Minnkar líkur á að fita hlaðist á æðaveggi, á hjarta, nýru og lifur.
3. Blóðhreinsandi.
4. Eyðir sníkjudýrum í meltingarvegi.
5. Myndar mótvægi og hreinsar eiturvirkni frá kvikasilfri, áli og blýi.
6. Verndar gegn neikvæðum áhrifum fá röntgen og annarri geislun.
7. Styrkir og eykur sveigjanleika himna í liðamótum, beinum, lungum og eitlum, vinnur gegn streitu og streituskemmdum.
8. Styrkir vefi, líffæri og vöðva.
9. Eykur virkni og vökvaupptöku í vefjum.
10. Eykur framleiðslu rauðra blóðkorna og styrkir þau.
11. Eykur möguleika líkamans til súrefnisupptöku, m.a. með auknu súrefni í stoðfrumum.
12. Viðheldur bættum efnskiptum og betra jafnvægi við næringu fruma líkamans.
13. Eykur næringu til heila og taugakerfis.
14. Varnar því að eiturefni geti borist til heila.
15. Losar og fjarlægir uppsöfnuð eiturefni úr fitu, eitlum, beinmergi, blöðru og næringar vinnslu líffærum.
16. Hreinsar öndunarfæri með aukinni slímlosun.
17. Minnkar álag á lifur með því að umbreyta eitruðum fituefnum og gera þau vatnsuppleysanleg og sem geta skolast út gegnum nýru.
18. Auðveldar myndun lecitins í lifur, umbreytir í myelin sem er efni sem verndar og umlykur taugaenda.
19. Minnkar og mögulega fjarlægir alveg þungmálma, sem sest hafa í vefi, sérstaklega við liðamót, minnkar þannig stífni og sótthita í liðamótum.
20. Eykur virkni briskirtils og milta við aukningu virkni insúlins.
21. Auðveldar losun efna og gerir þau óvirk í þvagi. Jafnar efna- og oxalic sýrustreymi til nýrna og minnkar þannig líkur á myndun nýrnasteina í gallblöðru, nýrum og og þvagrás.
22. Dregur úr sársauka, eykur matarlyst, jafnar orku og eykur með því vellíðan.
23. Flýtir fyrir að sár gróa með nýmyndun fruma skemmdra svæða..
24. Eykur framleiðslu mótefna t.d. í sogæðum og T-fruma í hóstakirtli.
25. Varnar og hugsanlega eyðir myndun illkynja hnúta og æxla.
Búrblaðka (Krókalappa) (Arctium lappa) hefur verið notuð sem græðijurt um aldir víða um heim. Hún stuðlar að vexti og nýmyndum á heilbrigðum frumum. Styrkir heilbrigði gallblöðru og nýrna. Góð sem fæðubót og stuðlar að heilbrigðu jafnvægi blóðsykurs.
Græðisúra (Rumex acetosella) Í Græðisúru er mikið af vítamínunum A, B, C, D, K, P, U og E. Stein- og snefilefnainnihald er hæst af kalsíum, járni, kísil, magnesíum, brennisteini, zinki, mangan, joð og kopar. Einnig er hún rík af beta karoteni, blaðgrænu og citric, malic, oxalic, barkar og tartaric sýrum. Öll þessi efni eru mikilvæg fyrir starfsemi eitla líkamans. Einnig styrkja þessi efni flutning súrefnis um líkamann, krabbameinsfrumur drepast t.d. í snertingu við súrefni. Græðisúra er bólgueyðandi, kælandi, þvag- og hægðalosandi. Græðisúran stuðlar að betri heilsu í meltingarfærum og stoðvefjum. Inniheldur einnig efnaþætti sem jafna rakaþætti og næringu húðar.
Fjallagrös (Cetraria islandica) eru mjög nærandi, þau eru rík af bakteríueyðandi efnum og slímefnum m.a. likenín, mjög rík af flestum steinefnum, sérstaklega járn- kalíumsöltum. Þau eru græðandi og sérstaklega góð við öllum sárum og bólgum t.d. í meltingarvegi og öndunarfærum. Þau minnka ertingu frá magasýrum og græða sára slímhúð. Góð gegn exemhúð og þurrum hósta.
Vallhumall (Achillea millefolium) inniheldur m.a. ilmolíur (essential oils) sem í eru m.a. kíneol, ásúlen, júgenol, tújón, pínen, og kamfóra. Sérstaklega góður fyrir útæðakerfi og lækkar því
blóðþrýsting, einnig svitadrífandi, róandi, verkja- og krampastillandi, ríkur af barkarsýrum, ísóvaleriansýru, salisilötum, kólín, aspargin og sykrungum. Vallhumall er blóðhreinsandi, græðandi, barkandi og æðavíkkandi.
Tröllasúra (Rheum palamatum) Rótin hefur einnig verið notuð víða um heim til lækninga um aldir. Inniheldur vitaminin A, B, C og P, einnig kalsíum kopar, joð, járn, magnesíum, mangan, fosföt, kísil, súlföt og zink. Rótin er styrkjandi, hreinsandi fyrir líffærin og hefur bætandi áhrif á gall. Hefur sérstaklega hreinsandi og græðandi áhrif fyrir lifur. Losar einnig og hreinsar eitrandi efni sem hafa sest í ristil. Tröllasúran stuðlar að bættri heilsu og vellíðan, betri jafnvægi blóðflæðis og meltingarfæra auk jafnvægis í iðraflóru.
Regnálms börkur (Ulmus fulva) inniheldur mikið kalsíum, magnesium og vítamínin A,B,C, K og P auk þess hátt innihald af græðandi slímefni, mjölvi, sykrur, fenól, gallic- og barkarsýrur. Í berkinum er einnig í minna magni kromium, selenium, zink, kísill, fosföt og járn. Regnálmsbörkur er orkumikill en samt róandi, mýkjandi og sérstaklega græðandi, sótthreinsar og fjarlægir eiturefni. Hann er góður við innvortis sárum t.d. særindum í meltingarvegi, vélinda og maga. Styrkir líffæri og slímhúð t.d. maga og lungna. Efnaþættir Regnálmsbarkar jafna einnig sýrustig meltingafæra, sem annars gæti valdið meltingaróþægindum.
Þari (Laminaria digitalis) inniheldur öll stein- og snefilefni sem uppleyst er í sjónum og nauðsynleg eru lífverum til vaxtar og viðhalds. Auk þess inniheldur þarinn önnur lífsnauðsynleg efnasambönd, s.s. vítamín, aminósýrur, prótein og önnur lífvirk efnasambönd. Meðal virkra efna má nefna slímefni, mannitól, fúkósterin, fúkósantin, sísantin og ilmolíur (essential oils). Er nærandi, blóðhreinsandi, örvar skjaldkirtil og þar með öll efnaskifti líkamans. Gott við bólgum, vanvirkum skjaldkirtli og fyrir þá sem þjást af stöðugri þreytu og slappleika.
Heilagur Þistill (Cnicus benedictus) Heilagur Þistill hefur um aldir verið notaður til lækninga. Í rótinni eru t.d. efni sem stuðla að hreinsun slæmra efna úr blóðrás, jafnframt því að auka heilbrigði í öndunarfærum, eitlum, blóð- og þvagrás. Einnig er þessi efnasamsetning jákvæð fyrir losun óþarfa vökva, losar þá jafnframt út eiturefni, minnkar álag á lifur og bætir meltingu. Líklegt er að efnaþættir þessir komi í veg fyrir sýkingar í þvagrás, lifur og gallblöðru. Er bólgueyðandi og varnar gigtarbólgu, liðagigt og settaugabólgu. Í Heilögum Þistli eru vítamínin A,B,C, E, og P. Töluvert magn er af krómi, kóbalti, járni, magnesíum, fosfötum, kalí, kísil og zinki og einnig kalk, kopar, mangan og selen. Líklega er þó jákvæðasta efnið Unulín og með mesta lækningaþáttinn og styrkir helstu líffæri en sérstaklega lifur, milta og briskirtil.
Rauðsmári (Trifolium pratense) Rauðsmári inniheldur virk efni eins og salisýlsýru, sykrunga og sykrur auk kúmaríns og estrógenlíkra efna. Hann er græðandi, hressandi, þvagdrífandi og losar um slím t.d. í öndunarfærum. Hefur reynst vel við exemi og sóríasis. Hefur verið notaður gegn krabbameini, sérstaklega í brjóstum og eggjastokkum. Er notaður í smyrsli við húðkrabba.
Brunnperla (Nasturtium officinale). Brunnperla er rík af vítamínum, sérstaklega C, joði, járni, fosfötum og öðrum steinefnum. Inniheldur mikið af nærandi olíuefnum.
Efnaþættir í þeim jurtum sem jurtablandan er unnin úr hefur jákvæð og styrkjandi áhrif á ónæmiskerfi líkamans, jafnframt því að stuðla að endurnýjun fruma, styrkir vefi og húð auk þess að virka jákvætt á aðra þá þætti sem stuðla að betra heilsufari..
Athuganir og rannsóknir hafa sýnt að saman auka þessar plöntur jafnvægi milli líkamsþátta, þær eru blóðhreinsandi og varna eiturefnum bólfestu.
Með nútíma rannsókum og þróun í náttúrulækningum hefur vísindaleg þekking á eðli plantna aukist og skilningur á virkni þeirra á ónæmiskerfið og aðra þætti líkamsstarfsemi eru mun skýrari en áður.
Stundið slökun og hugleiðslu eins og t.d. yoga og tai chi.
Bætið næringarþætti með að auka daglegan skammt af lífrænt ræktuðu grænmeti og ávextum, hnetum og fræjum auk góðrar blöndu af grófu kornmeti. Þetta bætir efnaskipti líkamans og eiginleika til að lagfæra það sem aflaga hefur farið auk þess að stuðla að almennri vellíðan.
Slepptu allri fitu, unnum matvælum sem innihalda auk- og rotvarnarefni, gerfibragð- og litarefnum úr fæðu þinni.
Láttu heilsufars ráðgjafa þinn kanna efnaskiptin og stöðu nauðsynlegra snefilefna í líkama þínum. Snefilefnin eru lífsnauðsynleg til að viðhalda jafnvægi í heilbrigðu ónæmiskerfi.
Neyttu nægjanlegra vítamína.
Drekktu 3 – 5 glös af vatni daglega m.a. til að stuðla að og auka losun eiturefna og úrgangs úr líkamanum. Athugaðu að líkaminn getur losað sig við allt að 5 lítra af vökva daglega.
Hvíldu þig vel. Lágmark er að ná 6 tíma svefni á sólarhring.
Farðu í gönguferð, syntu eða hjólaðu minnsta kosti í 15 mínútur daglega.
Upplýsingar þessar eru til fróðleiks , en eru ekki ætlaðar til lækninga. Hlustaðu á líkama þinn, leitaðu frekari upplýsinga og ræddu alltaf við heilsufarsráðgjafann þinn fyrr en seinna. Notum einungis vottuð náttúruleg hráefni unnin á lífrænan hátt.