Um Heilsuhöndina

Jóna Ágústa stofnaði Heilsuhöndina árið 2007 þar sem boðið er upp á hómópatíu og aðra heilsutengda þjónustu/ heilsu- og óþolsmælingar, orkujöfnun, fyrirlestra, námskeið og heilsuvörur. Sérstök áhersla er lögð á heilsufrelsi. Vefsíðan www.heilsuhondin.is var opnuð um mitt síðasta ár og þá er boðið í fyrsta skipti á Íslandi upp á hómópatíuþjónustu í gegnum netið sem ég kalla "Hómópatía heim" í þeim tilgangi að ná til þeirra sem eiga um langan veg að fara eða þurfa skyndihjálp. Heilsuhöndin ehf. hefur bækistöðvar í Reykjavík og á Akranesi og sendir hómópatískar remedíur um land allt með viðeigandi leiðbeiningum.

Jóna Ágústa stundaði nám í hómópatíu við The College of Homeopathy í London sem hún lauk árið 2000. Hún var einn af stofnendum Heilsuhvols árið 2001 og hefur starfað þar frá upphafi en hætti starfsemi þar í maílok 2010.

Um Jónu Ágústu

Ég fæddist á Akranesi 1957 dóttir Ragnheiðar Líndal Hinriksdóttur og Gunnars Jóhannessonar. Frá Akranesi flutti ég 9 mánaða gömul og er nú loksins komin heim aftur hálfri öld síðar! Flutti síðastliðið sumar í Jörundarholt 158, yndislegt hús sem við köllum Hjartastað. Langamma og afi bjuggu í Reynistað og þar var ég oft á bernskuárunum. Langalangafi minn Sigurður Jónsson var hómópati og ég er stolt af því að feta í fótspor hans.

Fjölskylda

Ég er gift Freysteini Jóhannssyni blaðamanni og á tvö uppkomin börn þau Sjöfn Elísu og Atla Þór. Barnabörnin eru 6 á aldrinum fjögurra til átján ára. Ég byrjaði að búa 17 ára gömul og vann í tvo áratugi á Morgunblaðinu en fertug 1997 söðlaði ég um og flutti til London og lærði hómópatíu. Áður hafði ég lært Svæðameðferð árið 1987 og ítarlegra nám í Svæðameðferðarskóla Íslands 1990-1991. Á 30 ára afmæli Svæðameðferðarfélags Íslands 29. apríl 2008 var ég gerð að heiðursfélaga sem mér þykir vænt um. Ég útskrifaðist í október 2000, stofnaði Heilsuhvol ásamt fleirum í ársbyrjun 2001 og hef síðan þá unnið eingöngu við hómópatíuna til ársins 2009 að ég bætti við mig höfuðbeina- og spjaldhryggjarmeðferð á fótum hjá Dr. Martin Faure Alderson og hef unnið við svæðameðferðina samhliða hómópatíunni. Þá styrkti ég Ljósið veturinn 2010 með sjálfboðavinnu við að nudda en Ljósið er endurhæfingar- og stuðningsmiðstöð fyrir krabbameinsgreinda og aðstandendur þeirra.

Sérstök áhersla er lögð á heilsufrelsi. 


Póstlisti
Skráðu netfang þitt hér að neðan
 

Elementin fimm

Lifrin nærir vöðva og vöðvar styrkja hjarta. Lifrin stjórnar augum, sjónin.
Hjarta nærir blóðið sem lífgar magaorkuna. Hjarta stjórnar tungunni.
Magi styrkir holdið og holdið ver lungun.
Maginn stjórnar munninum.
Lungun styrkja húð og hár sem svo verja nýrun.
Lungu stjórna nefi.
Nýrun styrkja bein og merg sem svo styrkja lifur.
Nýrun stjórna eyrum.