Augnsýking úr sögunni

Þegar sonur minn fæddist fékk hann sýkingu í annað augað. Það vall úr því og stundum þegar hann vaknaði gat hann ekki opnað það því það var límt aftur. Ég ákvað strax að gefa þessu góðan tíma og sjá hvort litli líkaminn mundi ekki ná að vinna á þessu sjálfur, þar sem þetta virtist ekki angra strákinn neitt og ljósmóðirin sagði þetta ekki alvarlegt. Ég hreinsaði augað samviskusamlega með soðnu vatni og nuddaði tárakirtilinn. Ég prófaði líka að þrífa augað með brjóstamjólk en allt kom fyrir ekki. Eftir rúmar tvær vikur sagði ljósmóðirin mér að ef þetta lagaðist ekki fljótlega þá ætti ég að prófa sterakrem. Þá ráðfærði ég mig við Jónu Ágústu varðandi remedíur. Það er skemmst frá því að segja að 3 skömmtum og 4 tímum síðar var sýkingin alveg horfin og hefur ekki komið aftur.

Védís Sigurjónsdóttir 

Til baka

Póstlisti
Skráðu netfang þitt hér að neðan
 

Elementin fimm

Lifrin nærir vöðva og vöðvar styrkja hjarta. Lifrin stjórnar augum, sjónin.
Hjarta nærir blóðið sem lífgar magaorkuna. Hjarta stjórnar tungunni.
Magi styrkir holdið og holdið ver lungun.
Maginn stjórnar munninum.
Lungun styrkja húð og hár sem svo verja nýrun.
Lungu stjórna nefi.
Nýrun styrkja bein og merg sem svo styrkja lifur.
Nýrun stjórna eyrum.