Á Íslandi starfa nú viðurkenndir meðferðaraðilar með margra ára nám að baki bæði hér á landi sem og erlendis og félagar í sínum fagfélögum og/eða Bandalagi íslenskra græðara BIG. Það er samtök eftirtalinna fagfélaga: AFÍ - Acupunktur félag Íslands, CSFÍ - CranioSacralfélag Íslands, Cranio Félag höfuðbeina- og spjaldhryggsjafnara, FÍL - Félag íslenskra lithimnufræðinga, Organon - Fagfélag hómópata, SMFÍ – Svæðameðferðarfélag Íslands,
SSOVÍ – Samband svæða- og viðbragðsfræðinga á Íslandi.

Fullgildir félagar í framangreindum félögum eru aðilar að BÍG. Sett var á fót frjálst skráningarkerfi græðara og bera félagsmenn þess auðkennið: Skráður Græðari auk fagheitis.

Meðferðir sem í boði eru á Íslandi eru m.a.: Alexandertækni, grasalækningar, heilsunudd, hómópatía, höfuðbeina- og spjaldhryggjarmeðferð, ilmkjarnaolíumeðferð, kínesíólógía, kírópraktík, nálastungur, NLP, osteópatía, svæða- og viðbragðsmeðferð.

Alexandertækni á rætur sínar að rekja til Ástralíu þar sem leikari nokkur, Frederick Matthias Alexander (1869-1955), missti röddina í sífellu þegar hann var að vinna. Hann hafði farið víða milli lækna en enginn hafði fundið út hvað hrjáði hann. Sjálfur leitaði hann að lausn vandans og skoðaði vandlega hvernig hann beitti hálsinum við leiklestur. Hann sá mikla breytingu á hálsvöðvum er hann hóf lesturinn og rannsakaði svo hvernig hann beitti líkamanum við mismunandi aðstæður. Hann sá að líkaminn virkar eins og dóminó því spennan sem orsakaði raddmissinn hafði miklu víðtækari áhrif á líkamann í heild sinni. Andlega hliðin hefur líka mikið að segja s.s. streita, kvíði o.s.frv. Þessi tækni nýtist ekki bara listafólki heldur öllum á öllum aldri. Tæknin er kennd í einkatímum sem taka um 30 - 45 mín. Farið er yfir líkamsstöðu viðkomandi og unnið með frumstýringu þar sem skoðaðar eru daglegar hreyfingar, á stól, bekk, standandi, á bolta, allt eftir hvað hentar hverju sinni. Kennari leggur hendur létt á nemandann og leiðbeinir en togar ekki, hnykkir eða teygir. Best er að vera í þægilegum fötum sem þrengja ekki að.

Grasalækningar eru taldar vera stundaðar frá því fyrir Krists og heimildir til um notkun hvítlauks, einiberja og myrru til lækninga. Grasalækningar eru kenndar í háskólum í Bandaríkjunum og Bretlandi og lýkur með B.Sc. gráðu. Þær eru notaðar gegn ýmsum sjúkdómum. Fyrsta heimsókn til grasalæknis tekur ca. og farið er yfir sjúkrasögu og lífshætti einstaklings. Hér á landi eru jurtirnar notaðar ýmist þurrkaðar eða ferskar og settar í tinktúrur, olíur hylki, töflur, seyði og smyrsl. Yfirleitt eru gerðar sérblöndur fyrir hvern og einn.
Heilsunudd er samheiti yfir margar mismunandi nuddaðferðir, s.s. klassískt nudd, íþróttanudd, heildrænt nudd, svæðanudd, sogæðanudd, kínesíólógí o.fl. Nudd eykur hreyfigetu og vellíðan, það getur verið róandi og slakandi, það getur líka verið frískandi. Það losar um vöðvana og teygir á strekktum vöðvafestingum. Nudd er árangursríkt í verkjameðhöndlun, það eykur blóðflæði og hjálpar þannig til við að minnka bjúgmyndun. Þetta aukna blóðflæði verður til þess að flýta losun úrgangsefna úr vöðvum, en þessi efni geta valdið ertingu á taugaenda. Vöðvaslappleiki minnkar vegna aukinnar hreinsunar úrgangsefna frá þeim. Nudd eykur líka líkamsvitund fólks. Allt þægilegt og slakandi nudd sinnir snertiþörfinni, sem er ein af helstu frumþörfum mannsins. Án snertingar líður okkur ekki vel og sumir ganga svo langt að segja að ef til vill nægði nokkurra mínútna nudd á dag til að koma í veg fyrir fjölda líkamlegra og andlegra kvilla. Heilsunuddarar eru útskrifaðir úr Nuddskóla Íslands.

Hómópatía er heildræn meðferð sem miðar að því að koma á jafnvægi einstaklingsins til líkama og sálar með því að virkja hans eigin lækningamátt. Meðferð byrjar á ítarlegu viðtali sem miðar að því að finna remedíu sem gagnast fólki best. Lengd meðferðar getur verið eins breytileg og einstaklingarnir eru margir. Þó má segja að því lengur sem veikindin hafa varað því mun lengri tíma má búast við að meðferðin taki. Remedía er heiti yfir þau efni sem hómópatar nota. Þau eru unnin úr jurta-, dýra- og steinaríkinu og eru það mikið þynnt að ekki er lengur talað um eiginlegt efni heldur hvata. Flest höfum við upplifað táraflóð sem fylgir því að skera lauk, sviða og óþægindi í augum og nefi, sem líkjast einkennum frjókornaofnæmis. Því er það að remedía búin til úr lauk hefur oft reynst vel í slíkum tilfellum. Þetta byggir á lögmálinu „Similia similibus curentur“ líkt læknar líkt.

Höfuðbeina- og spjaldhryggjarmeðferð er lífeðlisfræðilegt kerfi, sem er tiltölulega nýlega uppgötvað. Það samanstendur af heila- og mænuhimnum og heila- og mænuvökva sem umlykur, nærir og ver miðtaugakerfið. Það nær frá höfuðbeinum niður í spjaldhrygg. Þetta kerfi er hálflokað vökvakerfi og vegna frásogs og framleiðslu á heila- og mænuvökva þá myndast taktföst hreyfing á vökvanum. Hún veldur svo hreyfingu á heila- og mænuhimnum sem kvíslast eftir himnukerfi líkamans sem er ein samhangandi heild. Þá hreyfingu er hægt að greina með snertingu hvar sem er á líkamanum. Þessi taktfasti sláttur í heila-og mænuvökvanum er u.þ.b. 6-12 slög á mínútu. Meðferðin fer þannig fram í flestum tilvikum að sá sem þiggur meðferðina liggur fullklæddur á bekk. Algengt er að meðferðin taki u.þ.b. klukkustund í senn en það er einstaklingsbundið hversu marga tíma fólk þarf að sækja.

Ilmkjarnaolíur hafa verið notaðar langt aftur í aldir og þekking Kínverja á þeim nær allt aftur til 5 þúsund ár fyrir Krist. Í Biblíunni er talað um tólf helgar olíur og notuðu Egyptar þær til lækninga. Grikkir notuðu kraftinn úr plöntunum í ilmböð, ilmnudd og til að græða sár og litu á ilmkjarnaolíur sem “ lyfjaskáp náttúrunnar”. Þær voru notaðar til varnar gegn andlegu og líkamlegu ójafnvægi. Franski efnafræðingurinn Réne Maurice Gattefosse er talinn faðir nútíma ilmkjarnaolíumeðferðar í Evrópu. Hann sá að mismunandi olíur höfðu t.d. sótthreinsandi eða bólgueyðandi áhrif á líkmann. Í dag eru stundaðar vísindalegar rannsóknir á efnum sem ilmkjarnaolíurnar innihalda. Rannsóknir hafa m.a. sýnt fram á virkni ilmkjarnaolía til að hjálpa fólki að viðhalda andlegu og líkamlegu jafnvægi. Þær eru notaðar í nuddi til þess að auka virkni þess því talið er að olíurnar geti flýtt fyrir bata.


Kínesíólógía er tækni sem tengir vöðvakerfi líkamans kínverska nálastungu-kerfinu. Kínesíólógía er byggð upp á heildrænni sýn á manneskjuna og að heilbrigði komi innan frá. Litið er á líkamann sem orkuflæði, með ákveðnum orkubrautum sem tengdar eru líffærum, vöðvum og vefjum. Kínesíólógía gengur út frá því að séum við í jafnvægi, andlega og líkamlega að þá líði okkur vel. En komi stífla í orkuflæðið, þá byrjum við að fá verki og kvilla, sem síðan geta orðið að krónískum sjúkdómum ef ekkert er að gert. Í kínesíólógíu er talað um að djúpa orkuflæðið liggi í og á milli líffæra, en grunna orkuflæðið í orkubrautunum sjálfum sem liggja utan á líkamanum. Orkubrautirnar eru 14, einnig eru fimm element eða stöðvar sem unnið er út frá. Í kínesíólógíu er unnið með jafnvægi yin og yang.

Kírópraktík er meðferð unnin með höndunum til þess að losa um spennu, verki af ýmsu tagi og er beitt nákvæmu stuttu og oftast snöggu átaki til þess að færa liði til betri vegar. Eftir það getur taugakerfið sent boð sem líkaminn finnur betur eftir meðferðina. Oft er unnið með liði sem orðið hafa fyrir hnjaski. Fólk þarf að koma oft fyrstu vikurnar sem er þó einstaklingsbundið. Þegar liðurinn fer að ná stöðugleika fækkar endurkomum hratt. Kírópraktorar hafa 4-5 ára nám á háskólastigi að baki.


Nálastungur eru ævafornt kerfi sem þróast hefur í þúsundir ára í Kína. Um er að ræða heildræna meðferð sem beitt er gegn langvarandi veikindum jafnt sem bráðaveikindum og meiðslum. Markmið meðferðarinnar er að vinna á orsök þess ójafnvægis sem myndast hefur í líkamanum. Nálum er stungið í punkta sem liggja víðsvegar um líkamann, oftast eru notaðir frá einum upp í fimm punkta í hverri meðferð. Hversu mörg skipti komið er í fer eftir því hve lengi veikindin hafa varað. Yfirleitt er nóg að koma einu sinni til tvisvar í mánuði eða jafnvel sjaldnar. Þegar unnið er með börn eru ýmist notaðar nálar eða punktarnir nuddaðir. Hér á landi starfa hámenntaðir nálastungufræðingar annars vegar og svo sjúkraþjálfarar, hjúkrunarfræðingar og aðrir sem hafa lært á stuttum námskeiðum að beita verkjameðferð með nálum.

NLP (Neurolinguistic Program er hugmyndafræði byggð á því að öll hegðun sé lærð og hafi ákveðið mynstur sem hægt er að tileinka sér, læra eða breyta því með því að brjóta upp hegðunina og tileinka sér nýjar venjur. Það má því segja að NLP séu fræði hegðunarmynstra og allra þeirra ótal anga sem frá þeim liggja. Með NLP er hægt að átta sig á eigin mynstri svo og annarra. NLP fræðin er ein aðferð til þess að sjá fyrir hegðun og að stjórna henni. Með NLP tileinkum við okkur sveigjanleika, skilvirkni og möguleika fyrir sálfan sig og aðra í lífinu.
Þessi meðferð er fyrir alla.

Osteopatía er notuð til þess að greina og meðhöndla stoðkerfavandamál, virkar vel gegn verkjum og allskyns vandamálum ungra sem aldinna. Notaðar eru teygjur sem losa um liðamót og unnið að því að styðja líkamann til sjálfshjálpar. Fyrsti tíminn felur í sér að fara yfir sjúkrasögu, veikindi og meiðsl. Framhaldstímar eru u.þ.b. 30 mín og sniðið að þörfum einstaklingsins. Osteópatar hafa að baki 4-5 ára háskólanám.
Svæða- og viðbragðsmeðferð er afar árangursrík við að ná fram slökun og vellíðan, auka orkuflæði líkamans og styrkja hann þar með til sjálfshjálpar. Viðbragðsmeðferð nýtist sem þrýstimeðferð á taugaviðbragðssvæði og á punkta á orkubrautum líkamans þar sem þær liggja um hendur og fætur. Hún byggir á því að líkami okkar hafi orkukerfi þar sem lífsorka flæðir eftir ákveðnum orkubrautum og að hægt sé að hafa áhrif á þetta orkukerfi t.d. með þrýstimeðferð á punktum sem liggja á orkubrautunum. Viðbragðsmeðferð er notuð til að hafa markviss afmörkuð áhrif á orkukerfi líkamans. Árangursríkt er að tengja þessi meðferðarform saman. Svæða- og viðbragðsmeðferð er markviss heilsumiðuð meðhöndlun. Hún getur verið lykill til að skapa aukin tengsl og trúnað milli fólks og virðist alltaf stuðla að því að koma jafnvægi á líkama og sál.

Póstlisti
Skráðu netfang þitt hér að neðan
 
Kjarni allra veikinda er í huganum.
Við erum öll eitt, ein meðvitund.
Hvernig við hindrum okkur getur verið orsök sjúkdóma.
Því er nauðsynlegt að sleppa og víkka út meðvitundina.