Hómópatía er heildræn meðferð til þess að koma á jafnvægi milli líkama og sálar einstaklingsins sem á að virkja lækningamátt hans.
Hómópatar gefa remedíur sem eru unnar úr jurta-, dýra- og steinaríkinu og eru það mikið þynntar að ekki er lengur talað um eiginleg efni heldur hvata.
Þegar farið er til hómópata hefst meðferðin á viðtali þar sem fólk segir ítarlega frá líkamlegu, tilfinningalegu og andlegu ástandi sínu. Út frá því finnur hómópatinn réttu remedíuna til þess að koma jafnvægi á manneskjuna.
Hómópatía nýtur vaxandi vinsælda á Íslandi meðal allra aldurshópa og bæði karla og kvenna.
Jóna Ágústa Ragnheiðardóttir hómópati, LCH, skráður græðari, svæða- og viðbragðsfræðingur
Jóna Ágústa nam hómópatíu í London við The College of Homeopathy, 1997-2000. Samhliða náminu starfaði hún í Newlands Park Natural Health Care Center í London þar sem hún sérhæfði sig í meðferð hverskyns óþols.
Hún er félagi í Organon fagfélagi hómópata, Svæða- og viðbragðsmeðferðafélagi Íslands og Bandalagi íslenskra græðara.
Forföll skulu tilkynnt með minnst sólarhrings fyrirvara annars verður farið fram á forfallagjald.
Mundu að tíminn hefur verið tekinn frá fyrir þig.