Bráðameðferð


Bráðameðferð gegnum netið

Þegar skyndiáföll dynja á, slys, sorgaráföll eða bráð veikindi. Þú sendir póst á  netfangið heilsuhondin@gmail.com og lýsir í stuttu máli því sem gerðist, einkennum og ástandi og því sem gerir það betra eða verra. Þú þarft að gefa upp nafn þess sem um ræðir, kennitölu, heimilisfang, símanúmer og netfang. Þegar um barn er að ræða þarf einnig að skrá nafn forráðamanns og kennitölu hans. Þegar beiðni um bráðameðferð hefur borist verður hringt til þín, tekið við símgreiðslu og þér sagt hvenær þú getur sótt remedíurnar. Það skal tekið fram að engin eftirfylgni er innifalin í bráðameðferð af þessu tagi.

Hafirðu ekki tök á því að nota tölvu skaltu hringja í síma 8953836 fyrir kl. 18 virka daga.

Bráðameðferð á stofu

Ef fólk óskar eftir því að koma á stofu þegar um bráðatilfelli er að ræða getur það athugað hvort það getur fengið tíma samdægurs eða daginn eftir. Bráðameðferð á stofu er ítarlegri en á netinu þótt hún sé langt í frá heildræn meðferð. Fái fólk ekki tíma er því bent á bráðaþjónustuna í gegnum netið.

Ráðgjöf í síma

Ef þú átt remedíur heima og vilt fá upplýsingar um hvernig þú getur notað þær við hinum ýmsu kvillum geturðu haft samband á heilsuhondin@gmail.com eða hringt í síma 8953836.

Póstlisti
Skráðu netfang þitt hér að neðan
 

Nýjung á Íslandi Hómópatían heim

Bráðaþjónusta og almenn hómópataþjónusta á netinu alla virka daga. Remedíur sendar um allt land. Lokað um helgar. Jóna Ágústa hómópati sinnir bráðaþjónustu gegnum netið og tekur viðtöl á Akranesi. Tímapantanir í síma 8953836.