Heildræn meðferð gegnum netið

Ekkert kemur í staðinn fyrir viðtal á stofu. En eigirðu um langan veg að fara eða átt þess ekki kost að koma á stofuna – þá býðst þér þessi þjónusta. Þú sendir netpóst á heilsuhondin@gmail.com með beiðni um meðferð, gefur upp nafn, kennitölu, heimilisfang, símanúmer og netfang. Gefur stutta lýsingu á aðalvandamáli þínu. Þá færðu fljótlega sent upplýsingablað, fyllir það út og sendir til baka. Þá verður hringt til þín, tekið við símgreiðslu og þér sagt hvenær sækja má remedíurnar. Ef engin tök eru á að sækja remedíurnar er hægt að fá þær sendar í pósti.

Hafirðu ekki tök á því að nota tölvu skaltu hringja í síma 618-7500.

Heildræn meðferð á stofu

Heildræn meðferð í hómópatíu er meðferð sem tekur á öllum þáttum mannsins bæði andlegum, líkamlegum og tilfinningalegum. Meðferðin byggist á ítarlegu viðtali og síðan velur hómópatinn remedíur í framhaldi af því. Algengt er að í upphafsmeðferðinni komi fólk á 3-6 vikna fresti.

 Sjá Verðskrá.

Póstlisti
Skráðu netfang þitt hér að neðan
 

LJÓS OG HLJÓÐ MUN NOTAÐ TIL LÆKNINGA.

Edgar Cayce.

HERBA EST EX LUCE: PLANTAN KEMUR FRÁ LJÓSINU.

Hans-Heinrich Reckeweg.