Ástandskönnun

Viðtal og mælingar með Scio-Indigo-vélinni sem tekur u.þ.b. eina klukkustund. Að því loknu er tekin ákvörðun um framhaldið.

Meðferð

Ef fólk ákveður að fara í meðferð í Scio-Indigo-vélinni tekur hvert skipti u.þ.b. eina klukkustund. Það er einstaklingsbundið hversu oft þarf að koma og með hve löngu millibili.

SCIO-Indigo-vélin

Scio-vélin skannar einstaklinginn eins og vírusvörn tölvu og ber tíðnitóna hans saman við gagnagrunn um það sem eðlilegt "má kalla". Hún greinir ekki heldur gefur orkuástand líkamans til kynna. Höfuðband, ökklaband og úlnliðsband eru sett á einstaklinginn og gegnum þau vinnur vélin án þess að hann finni fyrir því.

Sjá nánar á SCIO-INDIGO-vélin.

Póstlisti
Skráðu netfang þitt hér að neðan
 
Kjarni allra veikinda er í huganum.
Við erum öll eitt, ein meðvitund.
Hvernig við hindrum okkur getur verið orsök sjúkdóma.
Því er nauðsynlegt að sleppa og víkka út meðvitundina.