Þegar líkaminn er ekki í lagi gefur hann frá sér merki um það með tíðnisviði eða rafsegulsviði og þetta skaddaða svið er geymt í frumunum og getur magnast upp árum saman án þess að eftir því sé tekið. Efnafræðilegar breytingar fara að birtast síðar og bakteríur, vírusar og aðrir meinvaldar taka sér bólfestu í líkamanum. Lífsstíll okkar getur líka skapað eyðandi tíðnisvið sem má finna út löngu áður en líkamleg einkenni koma fram.


Streita getur verið afleiðing margra þátta s.s. eitrun, áfalli, meinvöldum, ofnæmi, erfðaþáttum, andlegum þáttum, vanafestu og skortseinkennum. Þegar streitan heldur áfram þá er sjúkdóma að vænta.


Meðan á meðferðinni stendur ná áhrif hinnar ytri rafsegulbylgju til líkamans gegnum ákveðna punkta og flæðir gegnum orkubrautirnar og inn í allt rafsegulkerfi líkamans og einnig í gegnum bandvefinn.


Líkamleg heilsa og vanheilsa, allar tilfinningar og hugsanaform gefur frá sér rafsegulbylgju. Quantum Physics hefur útskýrt rafsegulsviðið á vísindalegan hátt en á því byggja orkulækningarnar. Quantum Physics hefur líka uppgötvað að mannslíkaminn bregst við í samræmi við það lögmál.

Póstlisti
Skráðu netfang þitt hér að neðan
 

Elementin fimm

Lifrin nærir vöðva og vöðvar styrkja hjarta. Lifrin stjórnar augum, sjónin.
Hjarta nærir blóðið sem lífgar magaorkuna. Hjarta stjórnar tungunni.
Magi styrkir holdið og holdið ver lungun.
Maginn stjórnar munninum.
Lungun styrkja húð og hár sem svo verja nýrun.
Lungu stjórna nefi.
Nýrun styrkja bein og merg sem svo styrkja lifur.
Nýrun stjórna eyrum.