
meðferðarvélin hlustar eftir ójafnvægi af völdum fæðu, næringar, vítamínskorts, eiturs, hormónastöðu, tannvandamála, vírusa, baktería, umhverfisþátta, sveppa og sníkjudýra. Vélin ber þá tíðnitóna, sem einstaklingurinn gefur frá sér saman við gagnagrunninn. Hún skannar einstaklinginn eins og vírusvörn tölvu og leitar að öllu frá vírus, skorti, veikleika, ofnæmi, fæðuóþoli, öllu sem er óeðlilegt. Vélin greinir ekki heldur gefur orkuástand líkamans til kynna. Upplýsingarnar eru í grunninn öðruvísi en röntgenmyndir, blóðprufur o.s.frv. Höfuðband, ökklaband og úlnliðsband eru sett á einstaklinginn og gegnum þau hlustar vélin án þess að hann finni fyrir því. Þegar hún hefur hlustað vítamín-þáttinn, aminósýrur, næringu, fæðutegundir, steinefni, ensím, náttúrulegan sykur, eitur, hormónaástand, vöðvastyrk, sjúkdóma, málma, bakteríur, fúkka, sveppi, vírusa og heilsu og jafnvægi innri líffæra ber hún tíðnina saman við það sem "eðlilegt" má kalla. Í raun má segja að hún hleri allt sem hefur áhrif á heilsuna; hafi til dæmis einhver meltingartruflanir gæti vélin leitt í ljós að hann hafi í bernsku fengið salmonellu sem er enn að valda honum vanda.
Scio-Indigomeðferðarvélin gerir meira en að hlera tíðni. Hún kemur líka á jafnvægi og er því nokkurs konar orkupunktajöfnun eða orkuflæðisjöfnun. Hún mælir ekki einasta líkamlega tíðni heldur líka andlega og skannar með sama hætti sálrænt og tilfinningalegt ástand og finnur frávik frá því sem “eðlilegt” má kalla. Til dæmis áhyggjuhneigð sem augljóslega hefur áhrif á heilsuna.
Allir meðferðaraðilar sem leggja stund á heildræna meðferð þ.e. hug, sál og líkama vinna að því að koma jafnvægi á orkuflæði líkamans. Aðferðirnar eru bara misjafnar og meðferðaraðilar nota allskyns hjálpartæki til þess að flýta fyrir því að jafnvægi komist á. Má þar t.d. nefna mosk og sogklukkur nálastungunnar, ilmolíur og steina nuddaranna.
Árið 1930 hannaði vísindamaðurinn Royal Rife tæki sem gat leitt orkubylgjur um líkamann og voru honum til góðs. Vísindamenn og verkfræðistofur sem sýnt hafa uppfinningu Rife’s áhuga hafa sl. sex áratugi þróað betri og vandaðri tíðnileiðni-tæki sem tengd eru við flóknar tölvur. Sú hugmynd að sjúkdómur hafi ákveðið tíðnisvið eða viðbragð hefur verið rannsökuð og staðfest með margar bakteríur, vírusa og margt annað ástand s.s. krabbbamein. Tækin sem nú eru framleidd bera tíðnisvið saman við gagnagrunninn sem geymir upplýsingar um það sem “eðlilegt” má kalla.
SJÁ VERÐSKRÁ.