Síendurteknar sýkingar

Fólk leitar gjarnan til hómópata með börn sín eftir að hafa gefið sýklalyf oft og mörgum sinnum og sýkingar blossað upp eftir sem áður. Ég ætla að segja ykkur hvaða sýn ég hef á þetta ástand. Sýklalyfin trufla eðlilega þarmaflóru barnsins og hvaða hlutverk hafa þarmarnir? Þeir eru eins og rætur trjánna, sjúga upp næringarefnin og skilja út úrgangsefnin. Þarmaflóra sem ekki er í jafnvægi er ekki fær um að sinna þessu hlutverki. Það getur líka komið fram í óþoli bæði gagnvart því sem látið er ofaní börnin og er í kringum þau. Því þarf í flestum tilfellum að byrja á því að endurreisa þarmaflóruna með viðeigandi remedíum. Það ferli getur tekið 5-10 daga og í því hreinsunarferli geta einkenni komið upp eins og meiri slímmyndun, útbrot kringum bleyjusvæði eða munn. Þetta er alþekkt innan hómópatíunnar og sannast þá að remedía fer inn í lífskerfið og byrjar bataferlið hið innra og sem færist svo út á yfirborðið. Þegar þessu ferli er lokið má byrja uppbyggingarstarf með remedíum í þeim tilgangi að styrkja barnið heildrænt. Þá kemur það mörgum foreldrum á óvart að þegar barnið hefur náð ákveðnum styrk, að þá getur það skyndilega fengið háan hita! Ég hómópatinn gleðst hinsvegar yfir þessu, því þá er ljóst að barnið er komið á það stig að geta brennt upp bakteríum sem lágu í dvala og það hefur sýnt sig og sannað að séu gefnar viðeigandi remedíur í þessu ferli að ónæmiskerfi barnsins verður alltaf sterkara og sterkara og þá er gott að gefa heildræna remedíu t.d. á árstíðaskiptum í flestum tilfellum.

Eftir Jónu Ágústu hómópata.

Til baka

Póstlisti
Skráðu netfang þitt hér að neðan
 

Nýjung á Íslandi Hómópatían heim

Bráðaþjónusta og almenn hómópataþjónusta á netinu alla virka daga. Remedíur sendar um allt land. Lokað um helgar. Jóna Ágústa hómópati sinnir bráðaþjónustu gegnum netið og tekur viðtöl á Akranesi. Tímapantanir í síma 8953836.