Í frásögnum Morgunblaðsins af svínaflensunni hefur verið lögð mikil áhersla á hefðbundin flensulyf. Ekkert hefur verið minnst á óhefðbundnar meðferðir en í litlum ramma var getið um að leita mætti til náttúrunnar eftir veiruvirkum efnum svo sem í ætihvönn, tómötum og gulrótum. Sagt er að þegar spænska veikin geisaði um Evrópu 1918 hafi Danir m.a. notað ætihvönn til að berjast við sjúkdóminn og að fregnir hermi að Íslendingar hafi gert slíkt hið sama.
Í inflúensfaröldrum koma oftast ein eða tvær remedíur að gagni í hverjum faraldri fyrir sig. Þeir hómópatar sem hafa meðhöndlað slík tilfelli gefa þær upp. Þá er gott að gefa tvær bestu remedíurnar til skiptis.
Influenzinum hispanicum spænska veikin í hómópatískum búningi ásamt Gelsemium og Eupatorium læknaði og fyrirbyggði þessa lífshættulegu veiki sem og lungnabólgu, eyrnabólgu colitis, heilahimnubólgu og fl.
Ég mæli með að folk lesi greinina Hómópatía heimilanna - inflúensa á vefsíðu Heilsuhandarinnar og einnig grein um ráð við svínaflensu sem og öðrum flensum á www.heilsuhvoll.is og hvet það um leið til þess að taka ábyrgð og skoði hvað það geti sjálft gert til þess að styrkja sig gegn veirusýkingum.
Jóna Ágústa Ragnheiðardóttir hómópati.