Heilsuhringurinn á netinu

Efni tímaritsins Heilsuhringsins hefur verið sett á netið og er þar aðgengilegt öllum eftir slóðinni www.heilsuhringurinn.is

Heilsuhringurinn er tímarit um hollefni og heilsurækt sem gefið hefur verið út í 30 ár.

Nú er búið að setja valið efni úr eldri blöðum á vefinn og mynda gríðarlegt gagnasafn og upplýsingar á íslensku um allt milli himins og jarðar sem við kemur heilsu og vellíðan.
Aðgangur að vefnum er ókeypis og er fólk hvatt til að skrá sig á póstlistann svo það fái upplýsingar um nýtt efni o.fl. sem verður í gangi á vefsíðunni.

Til baka

Póstlisti
Skráðu netfang þitt hér að neðan
 

Elementin fimm

Lifrin nærir vöðva og vöðvar styrkja hjarta. Lifrin stjórnar augum, sjónin.
Hjarta nærir blóðið sem lífgar magaorkuna. Hjarta stjórnar tungunni.
Magi styrkir holdið og holdið ver lungun.
Maginn stjórnar munninum.
Lungun styrkja húð og hár sem svo verja nýrun.
Lungu stjórna nefi.
Nýrun styrkja bein og merg sem svo styrkja lifur.
Nýrun stjórna eyrum.