Svínaflensu-hræðsla

Það fer ekki framhjá neinum að flensufaraldur er í gangi og full ástæða til að brýna fyrir fólki að lesa leiðbeiningar sem landlæknisembættið gefur út um hreinlæti og lífsstíl til þess að efla ónæmiskerfið og forðast smit. Það sem ég verð við í starfi mínu sem hómópati er ofsahræðsla margra skjólstæðinga minna við flensuna, umfram það sem eðlilegt má teljast og ég veit að slíkur ótti lamar ónæmiskerfið. Framtíðarótti vegna ástandsins í þjóðfélaginu lamar líka ónæmiskerfið og því held ég að fleiri séu í hættu á að veikjast. Því vill ég brýna fyrir fólki að hugsa vel um sig, láta sér ekki verða kalt, fá nægan svefn, hollan mat og drykk, taka inn t.d. GSE dropana daglega núna, C og E vítamín, Beta caroten og taka fyrirbyggjandi remedíur. Fólk getur haft samband við heilsuhondin@gmail.com og fengið persónulega ráðgjöf gegnum netið og heimsendar remedíur sem fyrirbyggja flensu og þótt ég hafi einungis 12 ára reynslu í hómópatíunni þá get ég fullyrt að þeir skjólstæðingar mínir sem hafa tekið fyrirbyggjandi remedíur og smitast, að þeir fá bæði vægari einkenni og eru miklu fyrr að jafna sig eftir flensuna. Hómópatían á svar við vírussýkingum. Ekki hika við að hafa samband og skoða hvaða leiðir eru í boði aðrar en sprautugjafir.

Til baka

Póstlisti
Skráðu netfang þitt hér að neðan
 

Elementin fimm

Lifrin nærir vöðva og vöðvar styrkja hjarta. Lifrin stjórnar augum, sjónin.
Hjarta nærir blóðið sem lífgar magaorkuna. Hjarta stjórnar tungunni.
Magi styrkir holdið og holdið ver lungun.
Maginn stjórnar munninum.
Lungun styrkja húð og hár sem svo verja nýrun.
Lungu stjórna nefi.
Nýrun styrkja bein og merg sem svo styrkja lifur.
Nýrun stjórna eyrum.