Geislabjörg félag um frelsi frá rafmengun

Föstudaginn 23. apríl var haldinn stofnfundur félags fólks um frelsi frá rafmengun og fékk félagið nafnið Geislabjörg. Ragnheiður Ólafsdóttir var fundarstjóri og fólk á fundinum ræddi um reynslu sína af rafmengun. Svala Rún hélt erindi þar sem hún stiklaði á stóru um sína vinnu sem snýr að því aðstoða fólk sem telur sig búa við rafmengun. Talaði hún meðal annars um jarðárur, bylgjur og útskýrði hvernig þær geta haft áhrif á heilsu fólks og hvernig má úr bæta í húsum sem þannig er komið fyrir.

Fyrirspurnir komu fram m.a. hvort og hvernig hægt sé að mæla mun á rafmagnsbylgjum og jarðárum og hvort hægt væri að mæla styrk frá GSM möstrum. Fram kom að Geislavarnir ríkisins og Mannvit ættu mæla til þess að mæla styrk frá GSM möstrum. Þá kom fyrirspurn um hvar hægt væri að nálgast fjarskiptalög í sambandi við möstur en það er hjá Fjarskiptastofnun. Einnig var bent á Alþingi og Evrópustaðal.

Brynjólfur Snorrason fjallaði um sín störf í sambandi við jarðtengingar húsa og hvernig megi úr bæta. Var því vel tekið. Hann talaði líka um að ekki væri farið eftir reglugerð sem er í gildi um jarðtengingar og frágang á rafmagni.

Lög félagsins voru samþykkt samhljóða sem og nafnið Geislabjörg. Stjórn félagsins er svona skipuð: Svala Rún Sigurðardóttur formaður, Hulda Kobbelt, ritari, Fjóla Malen Sigurðardóttir gjaldkeri. Varamenn eru þau Karin Norgaard og Ágúst Sigurðsson.
Árgjald var samþykkt 3.500 kr.

Þá tóku til máls Kári Einarsson sem lengi hefur skoðað áhrif jarðára bylgna og ónógra jarðtenginga á heilsu fólks, benti hann á síðu á netinu Dr. Hartmann, einnig á síðu Burgecuelle. Kári mun verða Geislabjörg innan handar ef á þarf að halda. Haraldur Guðbjartsson rafvirki sagði frá síðum rafhof.is og þá var fjallað um áhugaverðar síður mastvictims.com magdahavs.com

Þá kom fram að heimasíða er í smíðum og aðalfundur yrði haldinn með haustinu.

Þeir sem hafa áhuga á að ganga í félagið sendi nafn og heimilisfang og netfang á hnaus@simnet.is

Til baka

Póstlisti
Skráðu netfang þitt hér að neðan
 

Nýjung á Íslandi Hómópatían heim

Bráðaþjónusta og almenn hómópataþjónusta á netinu alla virka daga. Remedíur sendar um allt land. Lokað um helgar. Jóna Ágústa hómópati sinnir bráðaþjónustu gegnum netið og tekur viðtöl á Akranesi. Tímapantanir í síma 8953836.