Gallsteinahreinsun

4 teskeiðar Epsom salt fæst í apótekum og heilsubúðum

1/2 bolli ólífuolía (má vera léttolía)

1 stórt eða 2 lítil grape (verður að vera 2/3 - 3/4 bolli af safa)

L-Ornithine hylki 4-8 hylki

Það er ágætt að undirbúa sig vikuna áður með því að borða léttan og hollan mat þá vikuna og minnka fitu eins og hægt er og drekka vel af vatni. Reynið að velja dag með sem mestu næði eða jafnvel nota tímann í sumarbústað.

Taktu engar pillur, vítamín eða lyf sem þú getur verið án þennan dag. Borðaðu mjög léttan morgunverð ÁN ALLRAR FITU. Ávaxtadjús, hafragrautur (engin mjólk) grænmeti með salti ef vill er í lagi. Þetta á bæði við um morgun- og hádegisverð. Ekkert er drukkið eða borðað eftir kl 14.

Þegar klukkan er orðin 2 skaltu taka til við að blanda Epsom saltið. Þú blandar í könnu 3 bolla af vatni (notaðu mælibolla) og hrærir í þá 4 tsk af Epsom salti. Þetta gerir 4 skammta sem voru 3/4 bolli hver. Settu könnuna í ísskápinn því það er auðveldara að drekka þetta kalt. Nú drekkurðu hvorki né borðar þar til kl 18.

Kl 18 Drekkið 1 skammt úr könnunni (3/4 bolla). Það má drekka nokkra sopa af vatni á eftir. Takið nú olíuna og greipið og hafið við stofuhita fram til kl. 20.

Kl 20 Drekkið annan skammt úr könnunni (3/4 bolla) . Núna er áríðandi að klára öll verk sem þarf að gera fyrir svefninn eins og ganga frá, vaska upp. Þú skalt líka klára allt sem þú gerir á baðherberginu(bursta tennur o.þ.h) því þú getur ekki farið á neitt vapp síðar. Á eftir máttu ekki hreyfa
þig og verður að liggja kyrr.

Kl 21:45 Mældu hálfan bolla af ólífuolíu í krukku (með loki). Handkreistu greipið í mælibolla þar til þú hefur 1/2 til 3/4 af safa. Þú mátt bæta við sítrónusafa ef greipið er ekki nóg. Blandaðu saman safanum og olíunni í krukkuna og hristu þetta duglega þar til lausnin verður vatnskennd. Vertu
núna alveg viss um að öllum verkum sé lokið og kláraðu núna ef eitthvað er eftir.

Kl 22 Drekktu hristinginn úr krukkunni. Sumum finnst betra að drekka í gegnum rör . Taktu með þessu 4 hylki af L-Ornithine. Þú mátt nota púðursykur tómatsósu eða kanil til að koma drykknum niður. Munið að drekka þetta standandi. Leggstu síðan niður (á bakið)og liggðu kyrr í 20 mín. Reyndu síðan að sofna. Þegar þú vaknar næsta morgun færðu þér 3 skammtinn úr krönnunni (3/4 bolla) og farðu aftur í rúmið ef þú vilt.

2 tímum eftir að þú vaknar: Drekka síðasta skammtinn úr könnunni og 3/4 bolla af olíu mixinu. Aftur í rúmið ef vill. 2 tímum eftir þetta máttu fá smávegis ávaxtasafa. Síðan geturðu fengið þér fitulausan og léttan mat. Farðu rólega í að borða hefðbundinn mat. (Steinarnir fljóta í klósettinu -
hitt sekkur!!!!!!!)

Til baka

Póstlisti
Skráðu netfang þitt hér að neðan
 

Nýjung á Íslandi Hómópatían heim

Bráðaþjónusta og almenn hómópataþjónusta á netinu alla virka daga. Remedíur sendar um allt land. Lokað um helgar. Jóna Ágústa hómópati sinnir bráðaþjónustu gegnum netið og tekur viðtöl á Akranesi. Tímapantanir í síma 8953836.