Hestaflensa, kvef, hósti, vírussýking

Nú þegar hestaflensa flæðir yfir landið er ekki úr vegi að gefa upplýsingar um einkenni hennar og remedíur sem gagnast við þeim.

Einkennin geta verið mismunandi allt frá vægu nefrennsli upp í vírusflensu með hita, þurr holur hósti, lystarleysi, eymsli í augum, munni og öðrum slímhimnum. Í öllum tilfellum skal taka þetta alvarlega og byrja meðhöndlun sem fyrst til að koma í veg fyrir að þetta taki langan tíma og draga úr hættunni á blóðnösum og öndunarörðugleikum.

Aconite 200 10M skal gefa strax allt að 4x sérstaklega á byrjunarstigi.

Aesculus 30c ef lekur úr augum og hósti með kaðalslími. Erfitt að kyngja og eru verri á morgnana. Sári hálsinn birtist hjá hestinum þannig að hann andvarpar stöðugt. Gefa þrisvar á dag.

Ant.tart 30c skal gefa þegar hryglir í brjósti við hóstann vegna mikils slíms. Þá getur verið mikil munnvatnsframleiðsla og stutt hröð og grunn öndun. Gefa þrisvar á dag.

Bryonia 30c skal gefa þegar kvefið verður viðvarandi. Vatnsrennsli úr nefi og augum og þau geta verið rauð og rök. Algengt er að munnur og varir eru þurr og hesturinn ofboðslega þyrstur. Hesturinn kýs að liggja niðri og ef hann hóstar er það mjög sárt. Öll einkenni verða betri við að vera kyrr. Gefa þrisvar á dag þar til einkennin dofna.

Gelsemium 30, 200, 10M hesturinn er þreyttur og augnlokin drúpa, brennandi sár nefútferð og vægur kitlandi hósti. Gefa þrisvar á dag.

Hepar sul 30 þegar útferð verður þykk gulleit úr nefi pirringur og ofboðslega viðkvæmur fyrir dragsúg. Gefa þrisvar til fjórum sinnum á dag.

Kali bic 30c þegar útferð er þykk gul og kaðalkennd úr nefi og jafnvel úr augum með augnloksbólgu og þreytu. Hesturinn er hitalaus. Gefa fjórum til fimm sinnum á dag þar til slímútferðin þynnist.

Spongia 30c þegar hóstinn verður hvínandi sagarblaðarhósti með hnerra á innöndun. Hóstinn hættir þegar hesturinn hefur drukkið eða borðað og vesnar við kalt loft og um nætur. Gefa þrisvar á dag.

Hesturinn okkar hann Mökkur fékk hita og glært nefrennsli og til að meðhöndla það og fyrirbyggja langvarandi veikindi gaf ég honum: Acon 10M þrjár inntökur og Gels 10M þrjár inntökur allt með 15 mín. millibili – eftir það fékk hann Ars 200 og Bry 200 til skiptis með 1 klst. millibili tvo umganga og eftir það með 6 klst. millibili þar til einkennin dofnuðu og hann varð heilbrigður á 2 sólarhringum.


Til baka

Póstlisti
Skráðu netfang þitt hér að neðan
 
Kjarni allra veikinda er í huganum.
Við erum öll eitt, ein meðvitund.
Hvernig við hindrum okkur getur verið orsök sjúkdóma.
Því er nauðsynlegt að sleppa og víkka út meðvitundina.