Hvenær er best að byrja? Þú byrjar þegar þú ert klár, hvenær sem er. Kannski ágætt að byrja um helgi til að venjast kúrnum, laugardagsmorgunn er t.d. ágætur tími til að byrja. Borða minna, borða létt og drekka mikið vatn eða safa.
Hvernig skal blanda? Teskeið af jurtadufti í glas af vatni eða safa. Best er nota sérstakt “hristi” glas eða krukku.
Hvenær sér maður árangur? Margir finna breytingar á fyrstu dögum, jafnvel aukna orku strax eftir fyrstu vikuna. Ef þú vilt “sjá” árangurinn þá fylgstu með hægðum og því sem þú losar þig við. Margt kemur þar á óvart þrátt fyrir að 70% örvera, aðskotaefna- og dýra sést einungis í smásjá.
Leggur maður af við hreinsunina? Já flestir léttast talsvert, oft fara 2-10. Maginn minnkar, þ.e. hann verður minna þrútinn og flatari ! Mengandi efnin sem þú losar þig við eru nú horfin og það sést á útlitinu, jafnvel þarftu að fá þér nýtt belti, allavega að herða um 2-3 göt! Strax og líkaminn er laus við aukaálagið nýtir líkaminn fæðuna betur og þú verður ekki eins sólgin/n í sætindi og fitu. Að sjálfsögðu verður fæðuval þitt líka sjálkrafa gert með ábyrgari hætti fyrst þú ert búinn að fara í gegnum þetta hreinsunarátak.
Hvernig er er best að skipuleggja hreinsitímann? Ef þú ert að vinna að ristilhreinsun í fyrsta skipti með jurtum, þá er ráðlegt að gefa sér góðan tíma með breyttu matarræði, helst í einn til tvo mánuði. Mundu að það hefur tekið þig áratugi að safna mengandi og heilsutefjandi efnum í meltingarfærin og sérstaklega í ristilinn. Mikilvægt er að drekka mikið af vatni eða ávaxtasafa á hreinsitímanum, glas eftir hverja inntöku og 6-8 glös yfir daginn. Ef þú ert á lyfjum er rétt að taka þau inn klukkustundu áður en jurtir eru teknar. Ef heilsan er ekki góð þá er alltaf ráðlegt að ráðfæra sig við lækni eða heilsufarsráðgjafann þinn. Þeir sema fara í slíka hreinsun árlega láta sér nægja mánuð, svo eru aðrir sem finna svo mikla vellíðan af jurtunum sem notaðar eru að þeir nota hluta af meðferðinni daglega, sérstaklega blöndu 2 því hún inniheldur jurtir sem efla orkuna, vítamín og steinefni.
Hvað er best að borða á hreinsitímanum? Þó ekki sé nauðsynlegt að vera á sérstökum matarkúr samfara ristilhreinsun er samt nauðsyn að halda sig við hollustufæði s.s. lífrænt grænmeti, ávexti, kornmeti, hnetur og fræ Íslenskt sjávarfang er líka hollt, en óæskilegt er að borða mikið af kjöti.
Heilsuhöndin selur Ristiltvennuna og sendir um land allt.