Skólasystir mín í College of Homeopathy Adrianna Holman, næringarfræðingur, hómópati og nuddari gaf út í sl. viku bók sem hún nefnir Love Your Scar. Hún er skrifuð í þeim tilgangi að gefa upplýsingar um leiðir til sjálfshjálpar konum sem hafa gengist undir brjóstabrottnám vegna krabbameins. Adrianna hefur unnið með fólki með krabbamein í London Bridge Hospital frá árinu 2002 og mest með þeim sem finna til í örinu eftir aðgerðina.
Í bókinni útskýrir hún hvað ör er og hvaða áhrif það getur haft á líkamann í heild sinni. Hún talar um mismunandi aðgerðir sem framkvæmdar eru og örin sem fylgja í kjölfarið og bendir á sjálfshjálparaðferðir s.s. nudd sem örvar hreyfigetu eftir aðgerðina, teygjuæfingar og hreyfingu, hómópatískar remedíur sem gagnast við að heila sárið og dregur úr öramynd. Þá fjallar hún líka ítarlega um olíur sem gagnast best á ör, náttúruleg fegrunarráð, næringarráðgjöf, öndunaræfingar, sjónmyndun og fleira.
Þetta er önnur bókin sem Adrianna gefur út sú fyrri er gefin út af Neal’s Yard Press og heitir: Understanding Eczema.
Til að panta bókina má fara inn á www.loveyourscar.com