Afeitrun málma

Hómópatinn velur viðeigandi remedíur til inntöku í u.þ.b. þrjár vikur. Þá er nauðsynlegt að drekka vel af vatni. Taka kínverskar chlorella þaratöflur þrisvar á dag og taka inn góð vítamín, steinefni, prótein og fitusýrur til að byggja upp heilbrigðan og sterkan vef í stað þess sem er götóttur eftir málmana. (þegar kvikasilfursfrumeindir og sameindir annarra þungmálma losna byggir líkaminn nýjan vef í staðinn og ef hann fær ekki þau efni sem hann þarf með blóðinu á þeim tíma tekur hann byggingarefnin úr stoðvef líkamans, þ.e. sinum og liðböndum sem getur af sér vandamál þar í staðinn.)

Samhliða þessu er gott að taka inn eftirfarandi:

1 hvítlauksgeiri
½ bolli möndlur, cashewhnetur eða aðrar hnetur
1 (þjappaður) bolli fersk kóríanderlauf
2 msk ferskur sítrónusafi
6 msk græn extra virgin ólífuolía

Laufin eru hökkuð með olíunni í vél áður en hinu er bætt við þar til allt er orðið að mauki. Hægt er að mýkja það með smá vatni. Þetta má frysta. Takið nokkrar teskeiðar daglega í 2-3 vikur. Svona kúr er óhætt að taka 1-2 sinnum á ári til að hreinsa vefi og líffæri.

Best er að öll hráefnin séu lífrænt framleidd, því ekki viljum við stoppa í götin með eiturefnum! Hráefnin ættu að fást í heilsubúðunum, t.d. Góð heilsa gulli betri, Manni lifandi, Yggdrasli, Heilsuhúsinu, Hagkaupum og Fjarðarkaupum.

Kóríander er talinn þeim eiginleikum búinn að draga auðveldlega í sig málm. Kvikasilfur er hins vegar talið flytjast milli líffæra í stað þess að skolast út sé reynt að reka það út úr líkamanum. Eigi sérstaklega að hreinsa burt kvika¬silfurs¬eitrun geta hómópatar virkjað kóríanderlaufin sérstaklega með hómó¬patísku kvikasilfri til að auka líkurnar á að kvikasilfrið komist alla leið út úr líkamanum með úrganginum sem verður til við meltingu laufanna.

Samantekt Jóna Ágústa. Heimildir: Þuríður Hermannsdóttir og Robert Davidson.

Birt án ábyrgðar.

Til baka

Póstlisti
Skráðu netfang þitt hér að neðan
 

Elementin fimm

Lifrin nærir vöðva og vöðvar styrkja hjarta. Lifrin stjórnar augum, sjónin.
Hjarta nærir blóðið sem lífgar magaorkuna. Hjarta stjórnar tungunni.
Magi styrkir holdið og holdið ver lungun.
Maginn stjórnar munninum.
Lungun styrkja húð og hár sem svo verja nýrun.
Lungu stjórna nefi.
Nýrun styrkja bein og merg sem svo styrkja lifur.
Nýrun stjórna eyrum.