Bókin "How to get well" eftir P.O. Airola. er löngu uppseld á íslensku en ég fékk eintak fyrir allmörgum árum í Kolaportinu. Þessi bók er hin athyglisverðasta og fellur ekki úr gildi. Airola tileinkar bókina "öllum þeim sem þjást og deyja að óþörfu þar sem þeir voru óupplýstir og óvitandi um þær einföldu, öruggu og áhrifaríku aðferðir sem til eru til að koma sér sjálfur á bataveg og aftur til heilsu, og þeim litla en stækkandi hópi hugrakkra, víðsýnna og einlægra lækna - þeirri nýju stétt lækna sem fordómalaust og leitandi þreifa sig í átt til sannleikans og hafa þor til að nota hann sjúklingum sínum til góða hvar og hvenær sem þir finna hann - jafnvel þó svo vilji til að sannleikurinn sé í mótsögn við það sem á hverjum tíma þykir hið eina rétta til lækninga". Þetta skrifaði hann fyrir 37 árum en þrátt fyrir það eiga orð hans erindi til okkar enn þann dag í dag.