Nýlega var í Mbl. fjallað um kenningar lífefnafræðingsins Huldu Clark. Við hómópatarnir i Newlands Park Health Care Center í London unnum eftir kenningum Huldu Clark og gátum staðfest með kínesíólógíu að það sem hún sagði vera orsök í ákveðnum sjúkdómum var rétt. Hún segir t.d. um ýmsa þarma- og ristilsjúkdóma s.s. IBS (Irritable bowel syndrome) og Crohn's að sníkjudýr séu aðalorsökin. Hún segir þrjá þætti vera í gangi: næmi hvers einstaklings, mengun og sníkjudýr. Mengun laðar að sér sníkjudýr. Hómópatía er gott meðferðarform en virkar illa ef slík viðvarandi orsök er til staðar. Kínesíólógía hefur ekkert með hómópatíuna að gera en hjálpar mér til þess að finna orsök sem má uppræta og þá mun líkaminn nýta remedíuna sem hvata til að lækna sjálfan sig.
Hulda Clark segir m.a. í bók sinni "The Cure For All Diseases" að sársaukafull sár á tungu (aphtous) tengist Celiac sjúkdómi, Crohn's og Bechet's syndrome og að vírusinn herpes simplex sé algeng orsök sem hún segir erfitt að meðhöndla.
Um nokkurn tíma hefur þruska orsakað allskyns meltingarfæratruflanir, ristilvandamál og mörg önnur tengd einkenni sem rekja má beint til Candida albicans, gersveppnum sem stundum gegnsýrir þarmana. Bylting í rannsóknum varð til þess að hin vinsamlega þarmaflóra Acidophilus var framleidd og hefur linað þjáningar fólks um allan heim.
Ýmsar getgátur eru á lofti um hvað veldur því að þarmarnir mettast af Candida. Að sjálfsögðu spila fúkalyfin þar stóran þátt. En hvað ef vandamálið kemur upp aftur og aftur, hver er orsökin sem liggur undir niðri?
Nýjar uppgötvanir benda til að sníkjudýr í þörmunum geti orsakað allskyns kvilla þ.á m. Candida. Sníkjudýrin sem um er að ræða eru kallaðar "flögur" orðið merkir eitthvað flatt og á við hið flata útlit sníkjudýrsins.
Þarmaflögur eða sníkjudýr fara yfirleitt út úr líkamanum með úrgangi. Þau geta framleitt milljónir eggja og þau fara út í gegnum þarmana. Heilbrigður líkami og þarmar verða almennt ekki fyrir barðinu á sníkjudýrunum sem komast inn í líkamann á ýmsan hátt t.d. sé matur ekki almennilega soðinn, með gæludýrum og vegna ýmislegs annars sem er í umhverfinu.
Þrátt fyrir það að eggin fari út úr líkamanum, getur fullorðið sníkjudýr haldið sig þar með því að festa sig við þarmavegginn. Þá fara ýmis vandræði að koma s.s. ristilbólga, Crohn's sjúkdómurinn og IBS. Sníkjudýrin geta líka gert þarmana móttækilega fyrir aukningu Candida.
Sníkjudýrin þola Acidophilusinn vel og lifa góðu lífi þrátt fyrir hann. Komist klak inn í blóðrásina mun lifrin við eðlilegar kringumstæður drepa það svo það er raunverulega í þörmunum sem við eigum við verulegt vandamál að glíma.
Læknirinn Hulda Clark hefur með rannsókum sínum sýnt það og sannað að jurtasamsetning getur útrýmt sníkjudýrum giftusamlega. Notkun Wormwood, Svartri Valhnetuolíu og Cloves hefur komið vel út í rannsóknum ásamt Ornithine og Arginine til að meðhöndla of mikið ammoníak sem sníkjudýrin framleiða og þessi efni losa þarmana við sníkjudýrasmit á skömmum tíma.