"Ég hef farið eftir þörfum í nudd til Kristínar í gegnum árin með frábærum árangri. Þegar ég er undir miklu álagi hefur nuddið hennar hjálpað mér að vinna úr þreytu og uppsafnaðri orkustíflu. Kristín hefur góða þekkingu á því sem hún er að gera hvort sem það tengist líkamanum eða tilfinningum.
Ég mæli einlæglega með að þú prófir að fara til hennar í nudd það er upplifun útaf fyrir sig. Síðan er að muna að njóta!. "
Anne May Meidell Sæmundsdóttir
Ég slasaðist á öxl í september og í desember var líkami minn orðinn illa
farinn af ójafnvægi, vöðvabólgu og ég með stöðuga verki í báðum öxlum og
baki. Ég fór í einn nuddtíma hjá Kristínu um miðjan desember og það er hreint
ótrúlegt hvað ég náði miklum bata eftir aðeins einn tíma. Verkurinn í
bakinu hvarf alveg og hef ég aðeins fundið fyrir smáóþægindum þegar ég hef
setið lengi við tölvuna, einnig er jafnvægið miklu betra og öxlin sem
slasaðist ekki er miklu betri líka, og sjúkraþjálfarinn minn sá mikinn mun á
mér eftir nuddið og sagði orðrétt "þú ert hætt að ganga öll skökk og
skæld". Ég er svo ánægð að ég held áfram í nuddinu hjá Kristínu.
Ingibjörg Þengilsdóttir.
Ég hef farið reglulega í nudd til Kristínar og ég get einlæglega sagt að hún er sá besti nuddari sem ég hef komist í tæri við. Sem hlaupari til 25 ára þar sem ég hef oft verið undir miklu álagi hefur nuddið hjálpað mér að vinna úr þreytu og uppsafnaðri orku. Kristín er næm á mannslíkamann, einlæg og hlý manneskja. Hún hefur góða þekkingu á líkamanum og tengslunum á milli hugar, líkama og tilfinninga. Ég mæli eindregið með því að þú gefir sjálfri þér þá fallegu gjöf að fara í nuddtíma til Kristínar.
Með ljóskveðju,
Martha Ernstsdóttir