Kynningarfyrirlestur um hómópatíu og notkun remedía. Tekur u.þ.b. eina klukkustund.
Heilsufræði hómópatans: Hugmyndafræði hómópatíunnar útskýrð. Tekur u.þ.b. eina klukkustund.
Heilsufrelsi: Frelsi einstaklingsins til þess að velja sér þá heilbrigðisþjónustu sem honum hugnast best.
NÁMSKEIÐ 3 KLST. Tilgangurinn með þessu er að fólk finni sig öruggt í því að velja remedíur og gefa þær sjálfum sér eða sínum nánustu sem fyrstu hjálp. Átta tegundir af remedíum fylgja með hverju námskeiði.
Námskeið í bráðameðferð/heima og heiman: Lögð er áhersla á að kynna hómópatíuna og þær remedíur, sem gott er að hafa við hendina, þegar veikindi herja á fjölskylduna heima og á ferðalögum og einnig þegar bráðasýkingar verða, bit og annað sem getur ógnað ferðamanninum.
Hómópatía á meðgöngu og í fæðingu: Þetta námskeið er ætlað væntanlegum foreldrum í þeim tilgangi að létta á ýmsum kvillum sem vilja stundum herja á á meðgöngunni. Þá kemur sér vel að þekkja inn á nokkrar remedíur, sem eru gagnlegar fyrir fæðingu, í fæðingunni og eftir hana.
Hómópatía fyrir ungbörnin: Þetta námskeið fjallar um þá kvilla er helst herja á ungbörn fyrstu tvö árin í lífi þeirra s.s. magakrampa, eyrnabólgu, meltingarkvilla, svefnleysi, kvefpestir o.fl.
Hómópatía fyrir börn: Þetta námskeið fjallar um þá kvilla er helst herja á börn eftir tveggja ára aldur s.s. síendurteknar sýkingar, flökkuvörtur, meltingarvandamál, barnasjúkdóma o.fl.
Hómópatía fyrir unglinga: Þetta námskeið fjallar um helstu kvilla gelgjuskeiðsins s.s. skapsveiflur, höfuðverk, bólur, svefnmynstur o.fl.
Hómópatía fyrir konur: Þetta námskeið fjallar um helstu kvilla er konur glíma við s.s. hormónasveiflur og afleiðingar þeirra s.s. kyndeyfð, þyngdaraukningu, skapsveiflur, svefnleysi, fyrirtíðaspennu, blæðingar o.fl.
Hómópatía á breytingaskeiði: Þetta námskeið fjallar um allt er snýr að þessu tímabili í lífi konunnar og um það hvernig hún getur undirbúið sig sem best fyrir breytingaskeiðið og tekið á því meðan það varir.
Hómópatía fyrir aldraða: Þetta námskeið fjallar um þau einkenni og sjúkdóma er aldraðir glíma helst við s.s. þurrkur, sjóndepurð, eyrnaskerðing, sýkingar o.fl.
Tekið er við pöntunum í símum 533-2500 og 618-7500.
Hlakka til að sjá ykkur.
Jóna Ágústa hómópati.