Á hómópatían svar við gras- frjókorna- dýraofnæmiÞau eru ófá tilfellin sem ég hefi meðhöndlað gegnum árin og reynslan hefur sýnt að fólk kemur þegar það er hvað verst haldið og þegar því finnst læknalyfin ekki vera að virka. Þá er það eitt til ráða að taka hvorutveggja lyfin og remedíurnar og þegar áreitið dvínar er nauðsynlegt að taka remedíur heildrænt til þess að styrkja ónæmiskerfið. Þá er um að ræða að taka 2 inntökur að meðaltali í mánuði fram í desember, hvíla fram í febrúar og byrja þá aftur að styrkja sig heildrænt. Reynslan hefur sýnt að sé þetta gert má búast við að næsta sumar geti verið lyfjalaust, einungis hægt að notast við remedíur og í miklu minna mæli en árið á undan. Eftirfarandi remedíur hafa reynst vel við þessum kvillum en þær þarf að velja samkvæmt einkennum hvers og eins. Allium cepa, Euphrasia, Sabadilla, Mixed Pollen, Wyethia, Arum.
Ég mæli með að þú komir í viðtal eða nýtir þér bráðaþjónustuna og þá er nauðsynlegt að þú komir í viðtal að hausti og aftur í febrúar til þess að ná tilætluðum árangri.