Út er komin bókin "Meltingarvegurinn og geðheilsa" en það er þýðing bókarinnar "Gut and Psychology Syndrome" eftir Dr. Natasha Campbell-McBride.
Bókin fjallar um náttúrulega meðferð við einhverfu, þunglyndi, ofvirkni, geðklofa, lesblindu, athyglisbresti og verkstoli. Bókin hjálpar einnig börnum og fullorðnum að forðast eyrnabólgur, astma, ofnæmi og exem.
Dr. Campbell-McBride er læknismenntuð með sérmenntun í næringarfræði og taugasjúkdómafræði. Sonur hennar greindist með alvarlega einhverfu þriggja ára gamall og með breyttu mataræði og notkun próbíótískra bætiefna náði hún góðum árangri í að meðhöndla son sinn. Dr. Campbell-McBride rekur virta meðferðarstofnun í Bretlandi þar sem hún aðstoðar börn með námserfiðleika og þroskaraskanir og er bókin því sérstaklega ætluð tl þess að hjálpa fjölskyldum þessara barna. Hún hefur einnig sérhæft sig í næringarfræði fyrir fullorðna með meltingar- og ónæmissjúkdóma.
Dr. Campbell-McBride telur að bein tengsl séu á milli námsörðugleika, mataræðis og ástands meltingarvegarins. Hún hefur á undanförnum árum gefið út ógrynni efnis um þessi tengsl og flutt fjölmarga fyrirlestra og erindi á ráðstefnum um námserfiðleika og meltingarkvilla. Í þessari bók tekur hún saman það mikilvægasta úr efni sínu og miðlar af sérþekkingu sinni og reynslu.
Innsýn höfundar í efnið hefur sérstöðu því hún er ekki eingöngu fagmanneskja heldur líka foreldri. Eins og áður kom fram nýtur hún virðingar fyrir ráðleggingar sínar og meðferðarstofnun sína.
Hægt er að kaupa bókina eða lesa meira um hana inn á www.maturogheilsa.is