Heilsuhringurinn sem á nú þrjátíu ára afmæli sendi á dögunum frá sér glæsilegt afmælisblað. Þar er hver greinin á fætur annarri um það hvernig við getum best borið ábyrgð á eigin heilsu. Vil ég þar nefna sérstaklega grein um blöðruhálskirtilskrabbamein sem mér þótti frábær en allar greinarnar í blaðinu eru stútfullar af fróðleik og ég hvet alla þá sem hafa alltaf verið á leiðinni að gerast áskrifendur að gera það nú því eins og fram kemur í grein frá aðalfundi Heilsuhringsins í vor, á hann undir högg að sækja. Ekki er víst að allir geri sér grein fyrir því að hann er EINA óháða málgagnið á þessu sviði og allt veltur á því að fólk gefi vinnu sína og starfi þar af hlutleysi og brennandi hugsjón. Það má segja að nú séu tímamót í sögu Heilsuhringsins því á aðalfundi félagsins hurfu af vettvangi nokkrir þeir aðilar sem hafa helgað Heilsuhringnum allan sinn tíma í sjálfboðavinnu og verið vakin og sofin yfir honum eins og þau Ingibjörg Sigfúsdóttir og Ævar Jóhannesson og Sigrún Oddgeirsdóttir. Kveðjuorð þeirra allra í blaðinu voru góð lesning og vill ég þakka allt það sem Heilsuhringurinn hefur gefið mér sl. þrjátíu ár um leið og ég óska honum velfarnaðar um ókomna tíð.
Jóna Ágústa