Í upphafi síðasta árs heyrði ég að alheimsorkan væri nú þess eðlis að kýlin skyldu kreist, allt kæmi upp á yfirborðið, fólk færi að hreinsa til á öllum sviðum, henda út og skapa rými fyrir nýtt. Allt hefur þetta komið á daginn - og í upphafi þessa árs finn ég sérlega fyrir áhuga fólks til að hreinsa líkama sinn og þá um leið sálina. Agi er nauðsynlegur en hóf er best á hverjum hlut. - Kínversku fræðin hafa alltaf heillað mig, þau geta í fljótu bragði virst flókin, en eru í raun sáraeinföld þegar dýpra er kafað.Ef við lifum í samræmi við alheimsorkuna innra sem ytra farnast okkur vel. Þeir sem hafa frekari áhuga á þessum fræðum geta skoðað greinina um elementin fimm hér á síðunni. En almenn ráð mín eru þessi: Ekki fasta núna, byrjaðu daginn á hálfri sítrónu í hálft vatnsglas og fáðu þér ekkert í ca. hálftíma. Á meðan geturðu nuddað húðina með hönskum eða bursta, hringlaga hreyfingar uppá við til hjartans með gleði og kærleika, þetta þarf ekki að taka langan tíma - svo er farið í sturtu/bað og endaðu á því að skola líkamann að endingu með köldu vatni, húð og hár því það skolar t.d. burt kísil og gerir basískt. Húð og hár verður líflegra. Svo er gott ráð að fá sér eitt epli því að er hreinsandi. "An apple a day, keep's the doctor away" segir máltækið. Gott er að nota janúar og febrúar sem undirbúning fyrir vorhreinsun og föstu - kíktu á gallhreinsikúrinn - greinina um Elementin fimm. Hafðu samband ef þú hefur eitthvað til málanna að leggja. En almennt um viðhald góðrar heilsu er þetta:
Að borða rétt samsetta fæðu.
Að halda sýrustiginu í jafnvægi.
Rækta andlegt líf, bænir, íhugun, hugleiðsla, annað.
Hreyfing minnst 30 mín. á dag.
Góður svefn.
(Heimildir: Fyrirlestrar úr námi Jónu Ágústu/Örn Jónsson, Þuríður Hermannsdóttir, Dagmar Eiríksdóttir).