Oft spyrja foreldrar mig hvað mér finnist um bólusetningar og hvort þeir eigi að láta bólusetja börnin sín eða ekki. Ég bendi þeim á mikilvægi þess að þau taki upplýsta ákvörðun en það er aðeins hægt að gera með því að kynna sér rök með og á móti. Ég reyni af fremsta megni að beina þeim á hlutlausan hátt að trúverðugum upplýsingum en þær eru ekki á hverju strái því þótt mikið hafi verið skrifað um bólusetningar er margt af því efni hlutdrægt og styðst við litlar eða engar heimildir.
Kennari minn Neil Slade sem er líffræðingur og hómópati mælir með bókinni: Handbókin fyrir persónulegt val eftir Hans-Peter Studer (Floris Books 2005. ISBN 0-86315-455-7) sem lestrarefni fyrir foreldra sem standa frammi fyrir þessu vali. Hann segir að texti bókarinnar sé í góðu jafnvægi og höfundur styðjist við rannsóknir þar sem hann fjallar um barnabólusetningar. Hann segir höfundinn hvorki talsmann heilbrigðiskerfisins sem segir að þú verðir að láta bólusetja barnið þitt, né heldur er hann talsmaður óhefðbundnu meðferðanna sem segja að allar bólusetningar séu eitur og að þess vegna eigi ekki að bólusetja börn. Þess í stað tekur hann hvert bóluefni fyrir sig, ræðir um innihald þess, meinsemd og faraldsfræði sjúkdómsins, áhættuna af bólusetningu eða ekki bólusetningu og hvenær það er rétt að láta bólusetja ef það er ákvörðun foreldranna. Hann viðrar áhyggjur sínar í sambandi við kvikasilfur í bóluefninu og aldur barna þegar þau eru bólusett. Hann ræðir um samsettar bólusetningar og einnig hugsanlegt samband á milli MMR og einhverfu og ristilbólgu. Bókin fjallar líka um faraldsfræði sjúkdóma, efnafræði bóluefnanna og hvernig heppileg þróun ónæmiskerfisins gæti í raun byggst á því að við fáum sjúkdóma eins og hettusótt og mislinga.
Af kynnum mínum við Neil Slade treysti ég þessari ábendingu hans og mæli því líka með þessari bók.
Ég vil taka það fram að þegar foreldrar hafa tekið sína upplýstu ákvörðun þá styð ég þau á hómópatískan hátt hver svo sem ákvörðun þeirra er.
@Jóna Ágústa hómópati 2008.