Gulla-kistan

Heilsugullin mín eru orðin æði mörg á þremur áratugum og mál til komið að leyfa þeim að njóta sem vilja. Þau eru birt án ábyrgðar og alls ekki til þess ætluð að hindra fólk í að leita til læknis.


Eyrna- háls- brjóstsýking - Laukurinn kemur alltaf að gagni í hverslags eyrna- háls- brjóstsýkingu, skerðu hann til helminga og settu hann við rúmið yfir nótt og það dregur úr sýkingunni. Sjóða lauk í mjólk og borða fyrir svefn því hann dregur úr slími. Skerðu lauk og settu hann í pott með hunangi og sé það ekki til skaltu nota brúnan sykur og hvítan eingöngu sé ekkert annað í boði. Lauksafinn blandast hunanginu og úr verður frábær hóstamixtúra sem má taka eftir þörfum. Óþarfi er að borða laukinn, eingöngu safann sem brýtur á hvimleiðum hósta og örvar slímuppgang. Taktu bita af lauknum settu í heitt vatn og settu svo í ytra eyrað. Hér má líka nota hvítlauk og mun deyfa verk og draga úr bólgu.
Gamalt húsráð frá Bretlandi er að rista þykka brauðsneið og hella ediki yfir hana, setja hana í gamlan sokk og breiða hann utan um hálsinn.

Ólífuolían er notuð til margra hluta í Miðjarðarhafslöndunum og eru lækningaeiginleikar hennar vel kunnir. Ólífurnar eru kramdar og settar í gamlan sokk og settur utan um sáran háls eða settur inn í bakstra. Börn eru gjarnan böðuð upp úr volgum olífuklútum sérstaklega ef þau eru lítil, undir vigt eða veikburða á einhvern hátt.


Timian bað í öndunarfæravandamálum - Taktu 5 tsk af þurru eða fersku timian og settu í 1 pint eða hálfan lítra af soðnu vatni og látið vera þar í 5 mín. Látið drjúpa í bað eða fótabað eða skál til innöndunar. Timian gufan mun draga úr hvurslags krampa í lungunum sem kemur sér vel í astmakasti, léttir mjög á hverslags brjóstverk eða erfiðum hósta. Sjúklingurinn fer gjarnan að svitna mikið eftir þetta og sofnar svo vært á eftir. Frænka mín notaði þetta á son sinn árum saman sem tekur engin lyf inn í dag vegna þessa meðan frændur hans sem áttu við sama vandamál að stríða eru nú krónískir astmasjúklingar sem þurfa innöndunarstera.


Sinnepsbað í kvefi og hitavellu
og sérstaklega ef verkjar í vöðva og liði eftir erfiðan vinnudag í vinnu puð í garðinum eða í hestamennskunni. Taktu 2 væn handfylli af Coleman’s sinnepsdufti og hrærðu því í eins heitt baðvatn og þú þolir. Svo skaltu hræra og láta hitann af sinnepsduftinu draga út hitann í líkamanum. Þurrkaðu þér með heitu handklæði og farðu strax í hlýtt rúmið. Þetta virkar sérstaklega ef þú hefur ofreynt þig og vöðvarnir eru stífir og þig verkjar í þá.


Comfrey (Symphytum) má með sannni kalla jurtalyf. Kemur að góðu gagni í lungnavandamálum sem krem eða bakstur á brjóstið og áhrifameira er að þekja comfrey líka á iljarnar. Þetta er sérlega gagnlegt í barkahósta barnanna. Settu handfylli af Comfrey laufum í grysju og helltu sjóðandi vatni yfir þau. Settu það beint á sár/sýkingu eins heita og manneskjan getur þolað og bittu utan um það svo haldist vel yfir nótt. Ég hef heyrt að mörg sýkingin hafi læknast með þessu og þá þarf nú ekki að notast við fúkkalyfin!


Glycerine má fá í apótekinu en það kemur sér vel útvortis þegar varir og hendur eru sprungnar og hrjúfar. Líka þegar húðin er þurr og stíf í t.d. exemi og psoriasis. Blanda skal Glycerine til jafns við vatn því óblandað getur það valdið sársauka. Einnig má setja það í ytra eyrað þar sem húðin er þurr og flagnar. Glycerine vatn er líka gagnlegt sem munnskol þegar munnurinn er þurr og sár eins og oft er í krónískum sjúkdómum. Glycerine krem er besta forvörnin í legusárum. Þegar búið er að hreinsa legusár með glycerinevatni má setja eggjahvítu yfir það og leyfa loftinu að leika um það. Þar sem þetta er hreint prótein hreinsar það sár.


Blautir bakstrar eru gagnlegir þegar um er að ræða eymsli, sár, gigtar- mjóbak- álags og þreytuverki. 2/3 hlutar líns/bómullar eru bleyttir upp úr köldu vatni og settir á auma staðinn sem búið er að setja plastfilmu yfir eða efniskennt plast svo þú blotnir ekki við kalda baksturinn. Best er að setja þetta á um nóttina og taka burt að morgni og þá skal sturta (í sturtunni) yfir staðinn til að örva blóðrásina.


Hálsbakstrar - Það sama á við hér að setja 2/3 hluta líns/bómullar vætta köldu vatni og settir inn í 2-3svar sinnum þykkara efni t.d. gamaldags flónel (til að viðhalda hitanum) og vefja utanum hálsinn. Fara svo í háttinn og líðan verður miklu betri að morgni. Í bronkítis og þar sem bólgur eru í lungum er gagnlegt að nota blauta grysju fyrir eða eftir heita baksturinn, því það aðstoðar og örvar heilun þegar gefin er hómópatísk remedía. Ef útbrot eða bólur koma upp/út á yfirborðið eftir notkun slíkra bakstra er það álitið af hinu góða. Ef útbrotin eru óþægileg skal hætta að nota grysju og setja glycerine í staðinn eins og lýst er hér að ofan.

Krampar – Ef þú setur kork í rúmið um nótt þá bara koma þeir ekki eða verða miklu vægari. Enginn getur útskýrt af hverju en það einfaldlega virkar. Þetta geta ungir sem aldnir notað en ekki skal nota það á meðgöngu.

Mígreni/slæmur höfuðverkur – Settu fæturnar í bala með heitu vatni og á sama tíma skaltu setja frystipoka í handklæði á höfuð þitt. Þetta léttir oft á verknum en þú þarft að drekka vel af vatni allan tímann.

 
Þorsklifur skyldi líta á sem mat fremur en lyf. Hún inniheldur smáskammt af joði og brennisteini og hefur verið notuð gegnum tíðina gegn berklum, krónískri útferð úr eyrum, kirtlastækkun, beinkröm o.s.frv. Hún er góð í vannæringu, lystarstoli og lotugræðgi. Ef þú setur ísmola í olíu verður hún næstum bragðlaus. Engifervín tekur líka bragðið og er mjög gott fyrir meltinguna. Þorskalýsi dregur úr þreytu og byggir upp líkamann, vöðva og bein. Eftir síðari heimsstyrjöldina var börnum í Bretlandi gefið þorskalýsi daglega og appelsínudjús sem fæðuuppbót því matur var af skornum skammti. Einnig fengu þau 2 dl af rjóma til að efla almenna heilsu.

Kjúklingasoð á að gefa öll þau nauðsynlegu næringarefni sem þarf til að ná góðri heilsu. Nýlegar rannsóknir sýna einnig að kjúklingasúpa býr yfir þeim vítamínum og steinefnum sem þarf til að heila hverslags sýkingar. Kjúklingasúpa gagnast vel eftir hálssýkingar. Uppskrift: Sjóða kjúklinginn þar til hann er gegnsoðinn og mjúkur hella soðinu af honum og krydda eftir þörfum og gefa ristað brauð með þessu.


Hafragrautur er næringarríkur, styrkir vöðva og bein. Róar og nærir meltingarfærin og eru hafrarnir þekktir í grasafræðum og hómópatíu sem Avena Sativa sem hefur sannað virkni sína í að bæta næringu heilans og taugakerfisins. Kemur að gagni í taugaþreytu og í sjúkdómum sem ganga nærri taugakerfinu. Einnig í taugaskjálfta gamalmenna, flogaveiki, svefnleysi o.fl.

Perlubygg Pearl barley skal binda í klút og sjóða í 4 tíma í mjög litlu vatni og bæta frekar í til þess að næra byggið og draga úr að góða efnið fari úr bygginu. Má gefa með mjólk eða sultu og smjöri ef viðkomandi getur melt það.

Hrísgrjón eru auðmelt og viðeigandi í meltingarfæravandamálum. Sjóða þarf hrísgrjón og drekka soðið af þeim til að stöðva niðurgang og koma lagi á meltingartruflanir. Það tekur styttri tíma að sjóða hrísgrjón en bygg og gömul hrísgrjón eru betri en ný. Hrísgrjón og annarskonar grjónabúðingar eru næringarríkari án eggja. – Sjóðið hrísgrjónin í 10 mín, hellið vatninu af og bætið meira vatni í og svona áfram þar til ekkert gott er eftir í hrísgrjónunum. Þá er vatnið tilbúið til drykkjar þegar það er orðið kalt. Það má bæta rjóma út í og örlitlu salti.


Byggvatn: Setjið matsk af bygggrjónum í kalt vatn bætið 2 til 3 sykurmolum í, berki af einni sítrónu og safa úr hálfri sítrón. Hella yfir þetta ríflega lítra af soðnu vatni og látið standa í 40 mín og hellið þá vatninu af. Kúrennudjús eða lakkrísjurtarflísar er gott að setja í til að fá bragð. Hjálplegt í kvefi og lungnavandamálum með hita. Í þvagfærasýkingu dregur þetta úr brennandi verkjum við þvaglát.

Hörfræte róar í pirrandi hósta og slímuppgangi í lungnabólgu, niðurgangi og meltingartruflunum s.s. ristilbólgu, erfiðum þvaglátum og annarskonar bólgusjúkdómum. Takið 35 g af hörfræjum og 17 1/2 g af lakkrísrót og bætið í þetta ríflega lítra af soðnu vatni og látið á hlýjan stað í 40 mín. Hellið af og takið hálfa tsk. eins oft og þörf er á. Sítrónusneiðar og sykur er líka viðeigandi.

Svefn - Meðan við sofum á heilun og endurnýjun líkamans sér stað og því er svefnleysi algengasta orsök vanheilsu. Nútímamanninum hættir til að venja sig á að fara seint í rúmið en eðlilegt er að ganga til náða um kl. 22 og vakna um kl. 6 að morgni. Dýrmætasti svefninn er sá sem fenginn er fyrir miðnætti. Gerðu það að venju hversu upptekin/n sem þú annars ert að fara í rúmið tvisvar í viku kl. 10 því þá endurnærirðu allt líkamskerfið. Jafnvel smáblundur gerir líkamanum gagn hvað varðar efnaskipti o.fl. Þú endurnýjar hringrásina og orkuna til hjartans með því að liggja upp við vegg og beygja fæturna. Hringrásin endurnýjast á 5 mínútum og þú færð jafnmikið út úr því og næturhvíld. Ef svefntruflun verður er betra að vera á hreyfingu en að liggja í rúminu. Líkaminn getur auðveldlega vanið sig á stuttar kríur yfir daginn til að bæta sér upp svefnleysið.


Engiferbakstur - þreyta og /eða bólga í vöðvum
2 fullar msk rifið nýtt engifer sett í grisju eða poka. - 4 lítrar af vatni hitaðir að suðu, hitinn tekinn af og grisjunni bætt út í, látið standa í u.þ.b. 10 mín. - Safinn úr engiferinu kreistur vel út í vatnið. Einu til tveimur handklæðum difið í heitt engifervatnið og lagt á þann stað sem mælt er með. Setjið hreint handklæði yfir og teppi eða sæng. Svæðinu haldið heitu í 15 mín. með því að vinda handklæðin af og til upp úr heitu vatninu og skipta á.

Engifer - ýmislegt. Eykur blóðstreymi, hefur áhrif á nýru, losar um slím í líkamanum. Ef notaðir eru bakstrar er lagt á bak og herðar konum, en framan á brjóst karla. Góður árangur hefur náðst ef notaður á ennisholur, en má aðeins ef um venjulegt slím er að ræða. (Alls ekki á kvef eða grænan hor. Rótin þarf að vera eins fersk og unnt er, duft hefur ekki eins góð áhrif. - Rífið 250 gr. engiferrót og leggið í þunnan lérefst- eða grisjupoka. Sjóðið 4-5 ltr. vatn. Vatnið má ekki sjóða eftir að engiferið er komið út í. Munið að þeir sem hafa háan blóðþrýsting mega ekki nota engiferrót.

Saltbakstur
1 poki gróft salt, ristað á þurri pönnu, þar til saltið er vel heitt. Sett í grisju eða poka. Handklæði sett á bert hörundið, saltpokinn yfir og teppi eða sæng þar ofan á. Saltið má hita ca. 10 sinnum.

Sýking - ígerð - kælandi bakstur
Fínt skorið grænmeti /hvítkál - 15% kloptofyl (fæst í apóteki) - hrært saman.
Haft í einn og hálfan til tvo tíma á enni vegna hita, í öllum tilfellum og/eða ef um sýkingu eða ígerð er að ræða. Hvítkálsblöð eru einnig mjög góð við hita. Eru blöðin höfð í kulda fyrir notkun. Skipt á 20 mín. fresti, þá verða þau lin og slepjuleg.

Blaðra slöpp - Graskersfræ er mjög gott til að styrkja vöðva í blöðru. Fæst í heilsubúðum. Best er að hafa graskerið ferskt.

Drykkir
Eplasafi: Hálfur bolli eplasafi, hálfur bolli vatn, 1 tsk. kuzu. Allt soðið saman í 5 mín. Gott að blanda saman 75% 3ja ára tei og 25% eplasafa.
Þangte:
1 stöng Kombu eða biti af beltisþara - 4 bollar vatn, örlítið salt og sítrónusafi.- Leggið þangið í bleyti í vatni í 15 mín. Sjóðið í 20 mín. Kryddað m/sítrónusafa.
Kuzudrykkur -1 tsk Kuzu, 1 bolli vatn, 1 umeboshi-plóma - hálf til 3 tsk. Shoýu eða Tamar. - Kuzu leyst upp í vatninu, plómunni bætt út í og soðið í 15 mín. Kryddað með tamari og drukkið.
Kínaradísudrykkur - Bestur fyrir svefn. 1 msk rifin kínaradísa - nokkrir dropar tamari - heitt 3ja ára te sett í bolla (radísan) - tamari bætt út í og teiinu hellt yfir.
Kínaradísudrykkur - Hreinsandi fyrir líkamann.
Hálf stöng Kombu-þang - shiitakasveppur - 1/4 bolli rifin kínaradísa - örlítið salt - 2 bollar vatn. Þangið lagt í bleyti í vatn í 15 mín. sama gildir um sveppinn. Þang og sveppur skorið í ræmur. Soðið ásamt örlitlu salti í 30 mín. Rifinni radísu bætt út í og soðið í 10 mín.

Exem - Ójafnvægi í heiladingli og nýrnahettum. Gott að bera molkosan á bletti, það sótthreinsar. Fæst í apóteki. Einnig skal prófa að bera Efamól olíu (fæst í hylkjum og brjóta það upp) á mjóbakið, þar er taugaríkt svæði sem tekur við olíunni og þetta hefur haft áhrif á exembletti annars staðar á líkamanum s.s. andlitinu.

Eplaedik ýmislegt.  Borið á æðahnúta, njálg, andlit. Ef sár bera sex sinnum á dag, ef um ristil er að ræða borið óblandað á blöðrur fjórum sinnum á dag og þrisvar um nætur. Ef svitaköst eru um nætur bera á húðina fyrir svefn. Ef brunasár setja óblandað á sár því það deyfir eymsli og sviða.

Eyrnabólga

1 tsk. sesamolía - 3-4 dropar engifersaft - Hitað volgt í glasi og 2-3 dropar settir í hvort eyra.
Einnig gott að setja Thyme kjarnaolíu 1 dropa í græna olífuolíu 10 dropa og bera kringum eyrað og niður á hálsinn (ekki inn í eyrað). Bólgueyðandi.

Fætur - ýmislegt. Fótsveppur: Borið á Brentovrilt (fæst í apóteki) ef það sýður á fætinum bendir það til að sveppur sé að hrjá þig. Berðu Molkosan á sem er mjög sótthreinsandi. Setja í bómull á milli tánna.

Glútenóþol - Fæðuofnæmi sem er meltingarkvilli, sjúklingur getur ekki melt eggjahvítu (glúten sem er í kornvörum). Ástæðan er sú að ólag er á meltingarensímunum (hvötunum) sem kljúfa fæðuna niður í smærri fæðusameindir = melting. Þetta leiðir af sér skemmdir á þarmaslímhimnunni og þarmatoturnar vilja eyðast. Toturnar vaxa þó aftur ef sjúklingur heldur sig við glútenlausa fæðu í nokkra mánuði. Skaðlegt: hveiti, rúgur, hafrar, bygg. Heppilegt: hrísgrjón, maís, bóghveiti, hirsi, kartöflumjöl, hreinsuð hveitisterkja, sagógrjón.

Hósti eða ofnæmi - Gott að banka á hóstakirtil (milli brjósta með krepptum hnefa ) 7-14-21 sinni þegar hóstað er eða vegna ofnæmis.
Gott við hósta: Sítróna soðin í 10 mín. Pressið safann. 2 tsk. glycerín hrært vel í vatni, hunang sett út í.
Mýkir hálsinn:
Hella lífrænu hunangi yfir niðursneiddan lauk, plastfilmu yfir og 12 klst. síðar hefur myndast vökvi sem mýkir og taka eina og eina teskeið með jöfnu millibili.
Hunang
er fullt af orku, þið getið séð fyrir ykkur býflugurnar sem eru á fullu við að safna næringu handa drottningunni. Hunang fyllir upp í allar eyður sem kunna að vera í daglegu fæði okkar. Býflugurnar eru búnar að melta hunangið og því er það svo auðvelt upptöku fyrir okkur og ertir ekki meltingarfærin, bætir fljótt úr orkuþörf og reynir minnst á nýrun af öllum sykurtegundum, fyrir utan að vera mjög róandi. Hunang er náttúrusykur sem flest börn þola og hefur gefist vel í næringu handa ungabörnum. Þau fá sjaldnar vindverki og það er róandi, án þess að yfirfylla blóðið af sykri. Það hefur gefist vel handa börnum, sem væta rúmið á nóttunni, þá er þeim gefin 1 tsk. um háttatíma, það róar og dregur til sín og bindur vökvann meðan barnið sefur og léttir þannig á starfi nýrnanna. - Fyrir fullorðna sem erfitt eiga með svefn, er talið gott að taka 1-2 msk með kvöldmat. Sumir hafa fengið bót á fjörfiski með því að taka 2 tsk af hunangi með hverri máltíð. - Við vöðvakrampa (augu og munnvik) 2 tsk. með máltíð, tekur krampann viku að hverfa.
Brunasár: Hunangi smurt varlega á. Hægt er að útbúa hóstasaft með því að sjóða eina sítrónu við vægan hita í 10 mín. (þetta gefur meiri safa), sítrónan er síðan pressuð og safinn látinn í glas og settar í 2 msk. af glyserínu, hrært vel og glasið fyllt með hunangi. Þessi blanda er talin mjög góð við þrálátum hósta og síðan tekin inn eftir þörfum, en hrærist vel fyrir inntöku.
Hunangsvax - Propolis -
Hunangsvaxið eða hunangskakan er mjög gott við kvillum í öndunarfærum. Það eru vaxhylkin sem eru tuggin í u.þ.b. 15 mín. Þetta verkar mjög róandi á slímhúð öndunarfæranna og hefur m.a. reynst vel við ýmiss konar nefstíflu, bólgum í ennis- og kinnholum og þá er tugginn biti af svipaðri stærð og tyggigúmmí í 15 mín. á klst. fresti fjórum til sex sinnum á dag og tuggunni síðan fleygt. Til þess að forðast kvef og inflúensur er gott að tyggja tuggu af kökunni daglega allan veturinn þ.e. frá byrjun október til júníloka auk þess að neyta hollrar fæðu og taka 2 tsk af hunangi með hverri máltíð.

Húð - bólur - Gott að drekka mysu, blanda molkosan (fæst í apóteki) með vatni og bera á húðina, sem er bakteríudrepandi. Sólhatt í vökva er líka gott að bera á bólur.

Framhald...

Til baka

Póstlisti
Skráðu netfang þitt hér að neðan
 

Elementin fimm

Lifrin nærir vöðva og vöðvar styrkja hjarta. Lifrin stjórnar augum, sjónin.
Hjarta nærir blóðið sem lífgar magaorkuna. Hjarta stjórnar tungunni.
Magi styrkir holdið og holdið ver lungun.
Maginn stjórnar munninum.
Lungun styrkja húð og hár sem svo verja nýrun.
Lungu stjórna nefi.
Nýrun styrkja bein og merg sem svo styrkja lifur.
Nýrun stjórna eyrum.