Þessi upptalning er einungis ætluð til að fræða fólk um það m.a. hvernig remedíur eru valdar með tilliti til einkenna hvers einstaklings. Það getur verið fróðlegt að sjá hvað þær eru mismunandi remedíurnar. Mælt er með að ráðfæra sig við hómópata bæði varðandi val remedíu og styrkleika því þegar um kvíða er að ræða er nauðsynlegt að horfa á heildarmyndina. Styrkleiki sem fæst í apótekum eða heilsubúðum er einungis 30c sem dugar yfirleitt ekki í kvíða.
Aconite: Kvíði sem tengist óreglulegum og kröftugum hjartslætti, andstuttur og óttast dauðann.
Silica: Alvarlegur, augaspenntur, feiminn og missir gjarnan sjálfstraustið. Kvíðinn mikill er horfist í augu við að koma fram, viðtöl, próf eða ný verkefni. Áhyggjur og of mikil vinna: höfuðverkur, erfitt að einbeita sér, örmögnunarástand, ofurviðkvæmni og ógeð. Kvíðakast skyndilega með ofboðslegum ótta, hjartsláttur, andstuttur og roðnar.
Arg.nit: Kvíði þróast fyrir stóran atburð: vinnuviðtal, próf, ræðuhöld, gifting o.s.frv. Tilfinningalegt uppnám, ótti, kvíði, svimi, niðurgangur, þráir sætt, salt, sterkt bragð, kraftmikill með einkennilegar hugsanir og hvatvísi. Ótti við að koma fram (próf t.d.) með miklum hjartslætti, yfirliðstilfinningu, niðurgangi og vindgangi.
Arsenicum: Óttast heilsuna, verður að hafa reglu og öryggi. Kvíðakast á miðnætti, snemma morguns, örmagna samt eirðarlaus, fer af einum stað á annan. Meltingarvandi, astmi vegna kvíða. Þráhyggja yfir smámálum og nákvæmur, þarf að stjórna öllu. Ofboðslegur kvíði sem á sér enga sýnilega skýringu og tengist eirðarleysi sérstaklega eftir miðnætti, líka fyrir fullkomnunarsinnann, sem á líka við börn, sem óttast alla skapaða hluti.
Calc.carb: Kulsækinn og minnsti vindur fer í hann, erfitt að halda á sér hita, sækir í sætindi og verður fljótt þreyttur. Áreiðanlegt traust fólk sem veikist illa eða of mikil vinna brýtur þá niður. Hugsanir ruglaðar í sjúkleika sem gerir hann áhyggjufullan og kvíðinn. Áhyggjur og slæmar fréttir espa hann og ótti við eymd þróast. Óttast hæð og innilokunarkennd er í honum. Einkenni: Aukinn sviti, nætursviti, kaldar hendur og fætur, svimi, ógleði, ofboðslegt hungur, vill ekki fitu, sækir í egg, augu viðkvæm fyrir ljósi, fölt andlit, hæg melting en mikil matarlyst.
Gelsemium: Veikleikailfinning, skjálfti andlega þreyttur: lamaður af ótta. Kvíði vegna fyrirhugaðs atburðar. Kuldi, sviti, niðurgangur höfuðverkur kemur með taugaveikluninni. Ótti við fólksfjölda, við að detta og að hjartað gæti stöðvast. Einkenni: Taugaveiklun, kvíði vegna atburðar, þreyta og verkir um allan líkama, höfuð, augnlok og útlimir þung, höfuðkúpa sár, þorstlaus, svimi, skjálfti, utan við sig. Kvíði sem tengist því að koma fram endar í niðurgangi, höfuðverk, svima, veikleika og titringi svo hann á í erfiðleikum með að tala.
Ignatia: Viðkvæm kvíðafull vegna sorgar, vonbrigða, gagnrýni, einmanaleika o.fl. Tilfinningalegt álag, sérstaklega vonbrigði eða sorg. Á líka við ef fólk sýnir varnarviðbrögð, andvarpar oft og skapsveiflur. Manneskjan fer allt í einu og óvænt að hlæja eða gáta.
Einkenni: uppköst, finnst hnútur/kökkur vera í hálsi, kuldi með hita, þorsti meðan kuldakast er, kulda léttir á við hita, krampaverkir í kvið eða baki, höfuðverkur sem er eins og að nagli sé rekinn í aðra hvora hlið höfuðsins. Húðin ofurviðkvæm við dragsúg, lokaður og leiður. Grátgjarn, hafnar félagsskap, fullur vonbrigða, sorg, svefnleysi vegna tilfinningalegs ójafnvægis, ógleði sem léttir á við að borða, og að borða eykur hungrið.
Kali phosphoricum: Á við sé manneskjan útkeyrð vegna vinnu eða veikinda. Finnur djúpan kvíða og getur ekki höndlað hlutina. Ofurviðkvæmur og uppstökkur og getur stokkið upp á nef sér vegna venjulegra hljóða. Það gerir allt verra að heyra óþægilegar fréttir eða hugsa um ástandið í heiminum. Svefnleysi og einbeitingarskortur getur þróast og um leið aukið á kvíðann. Það léttir á að fá að borða, hlýja og hvíld.
Einkenni: Úrvinda, djúpur kvíði og höndlar ekki hluti, höfuðverkur, uppstökkur og ofurviiðkvæmur, stekkur upp við minnstu hljóð, bakverkur, meltingartruflanir vegna taugakerfis.
Lycopodium: Þeir freistast til að fela innri vanmátt sinn með því að setja upp grímu, þykjast vera eitthvað sem þeir eru ekki. Þeir upplifa kvíða vegna andlegs álags og þjást af vanmati. Þeir geta verið meðvitaðir og upplifað sig kúgaða af fólki sem þeir sjá sem valdamikið. Þeir geta fundið djúpan kvíða og ótta við að gera mistök þegar þeir taka ábyrgð en þeim tekst yfirleitt vel upp þegar þeir hafa byrjað á verkefnum. Þurfi hann að koma fram og er óöruggur felur hann sig oft bak við hroka og á líka við börn með kvíða sem tengist undirmigu.
Einkenni: Hristir höfuðið án eðlilegra skýringa, andlitsgeiflur, þenur nasirnar, harðlífi eða niðurgangur, súr uppþemba, innilokunarkennd, pirringur, meltingartruflanir með vindi og uppþembu, sækir í sætt, volgan mat og drykk, næturhósti, vill vera einn, gerir lítið úr öðrum, óttast mistök og brotnar niður undir álagi.
Natrum muriaticum: Þeir sem þurfa mest þessa remedíu eru mjög lokaðir á sjálfa sig en hafa félagslega meðvitund og þörf til að hjálpa öðrum. Djúpar tilfinningar og sjálfsvarnar feimni kemur þannig út að þetta fólk virðist tignarlegt, inni í sér og mjög prívat. Jafnvel þótt þeir séu einmana halda þeir sig frá félagslegum uppákomum, vita ekki hvað þeir eiga að segja eða gera. Auðsærðir og auðmóðgaðir geta þeir borið með sér gremju, verið stöðugt að hugsa um og velt sér upp úr leiðinlegum tilfinningum og einangra sig. Þeir kæra sig ekki um huggun jafnvel þótt þeir þrái hana innst inni. Þeir eru gjarnan samúðarfullir hlustendur á vandamál annarra. Innilokunarkennd, kvíði um nætur (með ótta um innbrot eða rán), mígren og svefnleysi eru oft þau einkenni sem kalla á þessa remedíu.
Einkenni: Tungan er þurr og slímhimnur þurrar, ógleði, svefnleysi, innilokunarkennd, mígrenishöfuðverkur, uppköst, verkur kringum augun, þráir salt og þurran mat, grátgjarn en leyfir öðrum ekki að sjá það, (vill vera einn er grætur), huggun truflar þá og gerir einkennin jafnvel verri, reiður af einangrun, ótti, sorg, reiði, taugaveiklaður og niðurbrotinn, vantrúaður á sjálfan sig og dapur.
Phosphorus: Á við þegar manneskjan er opin, hugmyndarík, æst, uppstökk og full af áköfum lifandi ótta. Sterkur kvíði sem versnar bara við að hugsa um eiginlega hvað sem er. Þeir eru taugaveiklaðir og viðkvæmir gagnvart öðrum. Þeir geta ofgert sjálfum sér með samúð svo að þeir eru úrvinda og úti að aka og verða jafnvel veikir. Þeir þurfa stöðugan félagsskap og uppörvun. Þeim líður yfirleitt betur eftir samtal eða ef einhver klórar þeim á bakið. Roðna í andliti, hjartsláttur, þorsti og sterk þörf fyrir kaldan ferskan mat kallar líka á þessa remedíu. Einkenni: Kvíði, ótti, veikleiki tengist rámri rödd, þungi á brjósti, þurrr skerandi hósti, brunaverkir í maga, kvið og milli herðablaða, þyrstur í kalda drykki sem þeir æla, ógleði, nætursviti.
Pulsatilla: Fólk sem þarf þessa remedíu tjáir sig um kvíðann sem um óöryggi væri að ræða og þarf stöðugt að fá huggun og stuðning. Þeir óttast einsemd, draga auðveldlega í land, missa móðinn, skapsveiflur, grátgjarnir, kveina og jafnvel tilfinningalega barnalegir. Einkenni versna ef þeim verður of heitt í loftlausu herbergi. Kvíði kringum hormónabreytingar (gelgju, tíðir, breytingaskeið) lagast oft á tíðum við þessa remedíu.
Einkenni: Viðkvæmni, kjökur, þráir athygli og samúð, breytileg einkenni og skap, þráir frískt loft, þurr munnur og þorstlaus, sterkur matur ertir magann, svefnleysi vegna stöðugra hugsana, höfuðkvef, laus hósti verstur um nætur, blæðingar standa á sér og eru litlar er þær koma.
Silicea: Á við þá sem eru vel færir og alvarlegir en samt taugaveiklaðir, feimnir og hættir til að fá tímabundin vanmáttarköst. Kvíði getur verið mikill þegar þeir standa frammi fyrir að tala opinberlega, fara í viðtal, próf, atvinnuviðtal eða takast á við ný verkefni. Áhyggur og of mikil vinna orsakar höfuðverk, einbeitingarerfiðleika og örmögnunarástand, ofurviðkvæmni.
Einkenni: Áhyggjur, of mikil vinna, höfuðverkur, einbeitingarskortur, örmögnun, ofurviðkvæmni, of sterk viðbrögð og athygli við litlum smáatriðum, orkuleysi, stöðugt með kvef, sáran háls eða önnur veikleikamerki.