hefur verið notuð í Englandi frá örófi alda. Hún mikil heilunarjurt, óx m.a. í klausturgörðum og nunnur og munkar notuðu mikið vegna augnverkja af völdum þess að þau unnu mikið allskyns fína vinnu s.s. við skriftir og sauma í myrkrinu. Því er hún góð remedía fyrir meiðsl og álag þ.á m. augun. Seinna notuðu prestarnir hana, dýfðu henni í heilagt vatn og hreinsuðu loftið með henni. Var hún þá kölluð “Herb of Grace”. Hún var einnig notuð til hreinsunar í dómsalnum, þegar loftið þótti vera orðið “rafmagnað”. Sagt er að þú getir losnað við flær með því að setja hana í volgt vatn, n.k te, sprautar því á dýrið og þá hverfa flærnar. Einnig notuð til hreinsunar í Islam-trú. Nafnið Graveolens þýðir að hún gefur olíu sem má alls ekki nota í ilmolíu-meðferð því hún er eitruð. Í bráðatilfellum er hún aðallega notuð við meiðslum eða álagi. Fólk fær skjótan bata hafi það snúið sig á ökkla. Mjög góð fyrir sinar, vefi, liðbönd, brjósk, augu og beinhimnuna og gagnleg í meiðslum þar, ef rifnar eða um tognun er að ræða, álag og lömun af þeim sökum. Besta remedían fyrir sködduð bein t.d. ef golfkylfan kastast í þig en aðrar remedíur eiga betur við ef bein er brotið eða sprungið. Ruta er sérlega góð við álagi í augum, ef fókus er lélegur. Fyrir fólk sem þreytist af videóglápi er til sérstök remedía sem heitir einfaldlega VD-views remedía. Við brennandi verkjum í augum er hún góð en ekki vegna ofnæmisverkja, þá hentar Euphrasia betur. Augnverkirnir gætu orsakað höfuðverk sem lýsa sér eins og hamarshögg eða stingandi verkir t.d. eftir lestur. Ruta er góð í hverskonar íþrótta-meiðslum. Munið að betra er að velja remedíu miðað við þær afleiðingar sem slysið hefur fremur en eftir einhverri rútínu í bókum. Segjum t.d. að þú fáir meiðsl sem hindra hreyfingu ætti þér frekar að detta Bryonia í hug. (Bryonia skal alltaf gefa ef hreyfing gerir ástandið verra). Rhux Tox er best ef verst er að hreyfa sig fyrst á morgnana og sem smálagast. Ef verkurinn er stöðugur við hreyfingu þá er Bryonia best. Ruta er best ef um skemmdir vegna meiðsla er að ræða. Ef harðir klumpar koma á bein, t.d. eftir högg, eða sem oft koma á gamalt fólk er Ruta mjög góð.