Remedían Symphitum Officinalis - Comfrey

Gamla nafnið yfir Comfrey var Knit-Bone. Í líkama okkar höfum við mismunandi staði sem kallast symhysis, í mjaðmargrindinni að framan þar sem tvö bein koma og mætast við lífbeinið. Það er þar sem beinendar mætast og heitir því Knit-bone og fyrsta remedían sem okkur dettur í hug ef um meiðsl eða beinbrot er að ræða. Aðalatriðið er að koma beininu á réttan stað fyrst áður en Symphitum er gefin. Hómópatían er meira eins og viðbót fremur en að koma í staðinn fyrir aðra meðhöndlun þar sem hún vinnur samhliða hefðbundinni læknisfræði. Symphitum hefur í sér allantoin en það er efni sem framleiðir nýjar frumur. Hún er mjög góð við áfalli á bein og einsog Ruta frábær við öllum beinvanda-málum og brjóskmeiðslum.. Ef verkir eru óbærilegir í beinum hugsið frekar um Symphitum en Rutu. Ef Ruta ekki lagar vandamál innan 24 tíma takið þá Symphitum í staðinn. Mjög góð við bakverkjum sem orsakast af of miklu álagi, hreyfingu, boxi og þesskonar álagi. Góð við pirringi á stað þar sem meiðsl hefur átt sér stað. Ég nefndi áður klumpa sem koma á beinin án þess að áfall hafi átt sér stað exostosis/beinmyndun. Fólk fær þá á höfuðkúpuna, algengt á gömlu fólki. Ég er ekki að tala um mjúka klumpa, heldur beinklumpa. Aðrar góðar remedíur eru líka Calc.phos og Hekla lava. Ef augun eru rauð og bólgin gefið Symphitum, ef ekki er um blæðingu í auga að ræða. Það má vera blóð eftir mar en ekki blæðandi. Symphitum fyrirbyggir útferð í auga eftir áfall sem og að létta á verkjum. Hafi augað skaddast verður viðkomandi að fá aðhlynningu og aðgerð ef þarf. Fari aðskotahlutur í auga og sýking fylgir í kjölfarið ráðlegg ég Euphrasia innvortis. Euphrasia er ekki áfalla-remedía en ég myndi gefa hana ef um vogrís eða almenna augnsýkingu er að ræða.


Almennt er Ruta best ef um brákuð bein er að ræða, Arnica er meira fyrir mjúku vöðvana og þetta er ekki vöðvi. Ef augnslys verður og mikið sjokk í kjölfarið gæti Arnica hjálpað v/sjokksins. Symphitum er góð ef um mar kringum augað er að ræða. Góð fyrir kýli á psoas vöðva, neðst í baki á spjaldhryggs-svæði.

Til baka

Póstlisti
Skráðu netfang þitt hér að neðan
 

Elementin fimm

Lifrin nærir vöðva og vöðvar styrkja hjarta. Lifrin stjórnar augum, sjónin.
Hjarta nærir blóðið sem lífgar magaorkuna. Hjarta stjórnar tungunni.
Magi styrkir holdið og holdið ver lungun.
Maginn stjórnar munninum.
Lungun styrkja húð og hár sem svo verja nýrun.
Lungu stjórna nefi.
Nýrun styrkja bein og merg sem svo styrkja lifur.
Nýrun stjórna eyrum.