Sveppasýking í leggöngum

Ertingur og kláði í leggöngum og ytri kynfærum
Aukin þörf til þvagláta
Sársauki og/eða sviði við þvaglát
Sársauki við samfarir
Þykk, hvít, rjómagul eða gul gerlyktandi útferð sem líkist helst gömlum osti að útliti og gerð

Ef mikil aukning er á candida í líkamanum gætu eftirfarandi sjúkdómseinkenni farið að segja til sín:
Fyrirtíðaspenna með skapsveiflum, brjóstastækkun og eymslum, vökvasöfnun og þreytu.
Meltingarvandamál með niðurgangi og harðlífi á víxl, brjóstsviða, uppþembu í kvið og blóðsykur gæti lækkað.
Þvagfærasýkingar.
Viðkvæmni fyrir mat eða ofnæmisviðbrögð.
Liðverkir.
Almenn þreyta og uppgefni.
Undarleg útbrot á húð eða vanlíðan í húð.

Ef þú færð sveppasýkingu/þrusku aftur og aftur færi best á því að forðast mat og drykk sem nærir sveppinn. T.d. áfengi, te, ost, sykur, sæta drykki, malt-mat, hvítt brauð, rautt kjöt, sveppi, vínedik, pickles og allan gerjaðan mat. Þú ættir að einblína á lítt unninn mat eins og ávexti, ferskt grænmeti, belgjurtir, brún hrísgrjón, náttúrulega jógúrt, fisk, jurtate og drekka fjögur til fimm stór glös af vatni á dag.

Til að létta á kláða og pirring, skaltu fara í saltbað (matskeið af borðsalti í baðvatnið) eða sprauta upp í leggöngin hálfri teskeið af vínediki blandaðri í bolla af vatni. Náttúruleg jógúrt beint úr ísskápnum er líka mjög sefandi/róandi fyrir leggöngin.

Forðastu hverskonar ilmböð, freyðiböð, baðolíur, sápur eða body-lotion á kynfærin því það örvar kláðann.
Klæddu þig í víð nærföt úr náttúrulegum efnum s.s. bómull. Forðastu þröngan fatnað úr gerviefnum, þröngar gallabuxur eða leggings því þau viðhalda raka og heitu andrúmslofti sem örvar vöxt candida sveppsins sem orsakar sveppasýkinguna.

Hvítlaukur er áhrifamikill því hann vinnur á sveppnum. Þar sem hvítlaukslyktin getur fælt fólk frá þér skaltu taka hann í töfluformi tvær töflur þrisvar á dag meðan sveppasýkingin er hvað verst. Þú getur svo minnkað skammtinn í eina töflu á dag ef þér finnst þú vera að lagast.

Ef sveppasýkingin skýtur upp kollinum aftur og aftur gæti verið gott að bæta á sig Acidophilus, Caprylic sýru eða kvöldvorrósarolíu.

Finnist þér ónæmiskerfið vera veikt fyrir vegna t.d. álags gætu C og B complex vítamín komið að góðu gagni. 1-3 gr. af vítamíni C daglega meðan ástandið er slæmt og minnka skammtinn í algert lágmark ef t.d. hægðirnar fara að linast. Gakktu líka úr skugga um að B-vítamínið sé alveg gerlaust.

Það er frumskilyrði að forðast að falla í þá freistingu að nota slævandi krem því þau munu aðeins deyfa sjúkdóminn tímabundið, en ráðast ekki á orsök hans.

Sveppasýking sem birtist í miðjum tíðahring: viðkvæmni, kláði, sviði og bólgutilfinning í leggöngum. Útferð gæti verið heit, ertandi, mjúk og þunn eins og eggjahvíta. Tilfinningin eins og heitt vatn fljóti niður lærin.
Það sem gerir það verra: Ef ekkert hylur svæðið. Hlýja. Eftir blæðingar. Snerting.
Það sem gerir það betra: Að kæla svæðið. Remedía: Borax.

Sveppasýking með sviðatilfinningu sem róast við hita: Það léttir á ertingu og óþægindum ef þú heldur einhverju volgu við svæðið. Útferð er brennandi, þunn, vatnskennd og tær. Leggöngin eru viðkvæm og bólgin. Þú ert kvíðin, eirðarlaus og uppgefin meðan þetta ástand varir.
Það sem gerir það verra: Að kæla svæðið. Kaldir drykkir. Á nóttunni. Áfengi.
Það sem gerir það betra: Hlýja. Að dreypa á heitum vökva. Að halda hlýju á svæðinu. Mjúk hreyfing. Remedía: Arsenicum.

Sveppasýking með þykkri illa lyktandi, ertandi, gulleitri útferð: Vilt ekki samfarir vegna viðkvæmni og þurrki í leggöngum. Ofboðslegur kláði sem versnar við gang. Uppgefin, þunglynd, eirðarlaus og pirruð meðan sýkingin er.
Það sem gerir það verra: Á morgnana. Fyrir blæðingar. Að sitja kyrr. Tilfinningalegt álag.
Það sem gerir það betra: Kraftmiklar æfingar í fersku lofti. Í rúminu. Að borða. Góður svefn. Í eftirmiðdaginn. Remedía: Sepia.

Sveppasýking með sársauka í leggöngum vegna þurrks: Þykk útferð sem líkist ósoðnu eggi, eða þunn, tær, vatnslituð útferð. Fælni við samfarir vegna sársauka, sviða og þurrks í leggöngum. Þunglyndi, vonleysi og dregur sig í hlé meðan á sýkingu stendur.
Það sem gerir það verra: Hlýja. Skortur á köldu frísku lofti. Snerting. Samúð. Eftir svefn. Á meðan á blæðingum stendur eða á eftir.
Það sem gerir það betra: Kælandi, frískandi bakstur, köld kompressa eða kalt bað. Að sleppa máltíiðum. Mjúk hreyfing. Remedía: Nat.Mur.

Sveppasýking með kuldahrolli eða verkjum í mjóbaki: Skyndileg þörf til þvagláta og almenn viðkvæmni í leggöngum. Sveppurinn versnar fyrir blæðingar og ef þér verður kalt. Kláði og útferð með sviða og krampaverkjum í vðvum.
Það sem gerir það verra: Kuldi eða hrollur. Ef þér ofhitnar. Líkamlegt álag. Eftir óléttu. Eftir samfarir. Snerting og hreyfing.
Það sem gerir það betra: Ferskt loft. Hlýja. Um daginn. Remedía: Kali carb.

Sveppasýking með þykkri súrlyktandi og sárri útferð: Sveppasýking með hægum efnaskiptum, þyngdaraukningu og þrálátri hægðateppu. Sýking versnar fyrir og eftir blæðingar með mikilli löngun í sykur og mjólkurmat. Lélegt úthald, stöðug þreyta við minnsta líkamlega álag.
Það sem gerir það verra: Svalt eða kalt ástand. Bað. Líkamlegt álag. Um nætur.
Það sem gerir það betra: Hófleg hlýja. Ef harðlífi er. Remedía: Calc.Carb.

Sveppasýking með kláðaútferð sem orsakar ofboðslegt eirðarleysi um nætur:
Erfiðleikar með svefn vegna kláða ef hiti er of mikill í rúminu. Kælandi bað léttir á kláða. Útferð úr leggöngum er mjög greinileg við þvaglát. Ýmist heit eða köld tilfinning með svita og greinilegt óþol fyrir köldum dragsúg.
Það sem gerir það verra: Mikil breyting á hitastigi. Ef of heitt verður í rúminu. Raki. Snerting.
Það sem gerir það betra: Hvíld. Jafnt hitastig. Remedía: Mercurius.

Sveppasýking sem kemur aftur og aftur með einkennum fyrirtíðaspennu: Sýkingin kemur fram fyrir blæðingar, á unglingsárum, eða á meðgöngu. Þykk, gulleit, mjúk útferð með greinilegum óþægindum og ertingu vegna hita. Sjaldgæfar skapsveiflur, kjökur, þörf fyrir samúð og umhyggju þegar sýking á sér stað.
Það sem gerir það verra: Um nætur. Hlýja. Loftleysi. Mjólkurmatur. Hvíld. Að verða of heitt í rúminu.
Það sem gerir það betra: Kalt ferskt loft. Kaldur bakstur á svæðið. Mjúk hreyfing. Ef svæðið er bert. Að gráta almennilega. Samúð. Remedía: Pulsatilla.

Sveppasýking með ofboðslegum kláða sem versnar við hita í hvaða formi sem er: Sjaldgæf eða endurtekin sýking með kláða sem hefur áhrif á svæði milli ytri kynfæra og endaþarms. Þung, gulleit eða hvít, illa lyktandi útferð kemur greinilega fram fyrir blæðingar. Pirringur og tilhneiging til stöðugra höfuðverkja.
Það sem gerir það verra: Þvottur eða ef vatn er látið á svæðið. Að hitna eða ofhitna í rúmi. Sykurfæði. Kuldahrollur. Að standa kyrr. Meðan á breytingaskeiði stendur.
Það sem gerir það betra: Stöðugur jafn hiti. Hvíld. Remedía: Sulphur.

Sveppasýking með hræðilegum sviða og verkjum djúpt inni í leggöngum: Mikil óþægindi og pirringur, illa lyktandi gul útferð úr leggöngum sem litar nærfötin. Þrýstings-tilfinning í baki eða kynfærum. Mjög pirruð og eirðarlaus og líður almennt illa.
Það sem gerir það verra: Að ganga. Að standa kyrr. Kuldahrollur. Kalt bað. Að liggja. Snerting.
Það sem gerir það betra: Að sitja. Hlýja. Remedía: Kreosotum.

Jóna Ágústa tók saman.

Til baka

Póstlisti
Skráðu netfang þitt hér að neðan
 

LJÓS OG HLJÓÐ MUN NOTAÐ TIL LÆKNINGA.

Edgar Cayce.

HERBA EST EX LUCE: PLANTAN KEMUR FRÁ LJÓSINU.

Hans-Heinrich Reckeweg.