Kólesteról

Greip

Margar gagnlegar upplýsingar um kólesteról er að finna með því að gúgla orðið en ég mun fjalla hér um náttúrulegar leiðir til þess að lækka slæma kólesterólið. T.d. ávöxturinn greip sem hefur í sér andoxunarefni, bætir meltingu, dregur úr blóðfitu og gigt o.fl. Nýlegar rannsóknir sýna að neysla ljósra og rauðra greipávaxta lækkar kólesteról. Mælt er með 250 ml. ferskur greipsafi lágmark á dag. Ath. að þetta getur aukið áhrif sumra lyfja.
Greipsafi framleiddur af Cintamani hefur verið seldur í Póllandi síðan 1998, samkvæmt ákvörðun Heilbrigðiseftirlitsins og með samþykki Matvæla- og næringarmálastofnunar.Fjöldamargar rannsóknir hafa verið gerðar á áhrifum greipsafa og hafa þær m.a. sýnt fram á andoxunaráhrif hans, bakteríudrepandi eiginleika og meltingarbætandi og sveppaeyðandi áhrif. Safinn dregur einnig úr bólgum í brisi og eykur blóðflæði þess, lækkar blóðfitu og blóðsykur, dregur úr æðaþrengslum og æðakölkun. Hann hjálpar einnig til við hreinsun líkamans og minnkar svikamólekúl vegna eitrunar. Rannsóknir hafa m.a.s. sýnt að safinn dregur úr líkum á hjartasjúkdómum og blóðtappa.

Cayenne

Cayenne lækkar kólesteról: Ath. hvort þú fáir það ekki ferskt í t.d. jurtaapótekinu eða heilsubúðum. Dick Quinn höfundur bókarinnar "Left for Dead" segir um Cayenne: Kólesteról: "Ég er með lægri blóðþrýsting og minna kólesteról, fyrirbyggi hjartaáfall, líður frábærlega og nýt lífsins betur en nokkurntíma og þakka því hinu algenga eldhúskryddi".

Cayenne er áhrifamikill hvati sér í lagi á meltingarferlið og hringrásina. Kemur jafnvægi á blóðþrýsting, styrkir púlsinn, nærir hjartað, lækkar kólesteról, þynnir blóðið, hreinsar blóðrásina, græðir sár, stöðvar blæðingar, flýtir fyrir að sár grói og byggir upp skaddaða vefi, léttir á stíflu, örvar meltingu, kemur jafnvægi á hægðir, léttir á gigt, fyrirbyggir sýkingu og deyfir verki.

Í blóðrásarkerfinu hjálpar Cayenne slagæðum, bláæðum og háræðum til að ná eðlilegum teygjanleika því það nærir frumurnar. Það jafnar blóðblæðið frá höfði til fóta, styrkir púlsinn með því að auka kraftinn en ekki tíðni hans. Almennt örvar Cayenne allt hjarta- og æðakerfið.

Hæfileiki Cayenne til að lækka kólesteról var fyrst uppgötvað í almennri tilraun í Central Food Technological Research Institute í Mysore í Indlandi. Er vísindamenn bættu Cayenne í kólesterólríkt fæði dýranna varð engin hækkun á blóðvatni og kólesteról í lifur en þess í stað hafði kólsterólið skilist út. Cayenne fyrirbyggir uppsog kólesteróls.

Sykurinn

Of hátt kólesteról hefur með sykurinn að gera í líkamanum og því er númer eitt að sleppa honum. Þá verður blóðsykursójafnvægi og mælt er með að nota í staðinn fyrir sykur t.d. Hunang Orange Blossom, Hrásykur og fá hann sem hreinastan. Hrísgrjónasýróp má nota í bakstur t.d. hafrakökur. Epla- og perusýróp eða búa til eplamús sjálfur. Þurrkaða ávexti má nota t.d. Gráfíkjur og döðlur sett í bleyti og sett í matvinnsluvél. Þá er kominn sætur massi. Ís má sæta með döðlum. Apríkósur eru góðar fyrir hægðirnar en þær eiga að vera brúnleitar, appelsínugular apríkósur hafa verið meðhöndlaðar með  kemískum efnum. Þá má fá Steviu sem er jurt og dísæt í eðli sínu.

Til baka

Póstlisti
Skráðu netfang þitt hér að neðan
 

Elementin fimm

Lifrin nærir vöðva og vöðvar styrkja hjarta. Lifrin stjórnar augum, sjónin.
Hjarta nærir blóðið sem lífgar magaorkuna. Hjarta stjórnar tungunni.
Magi styrkir holdið og holdið ver lungun.
Maginn stjórnar munninum.
Lungun styrkja húð og hár sem svo verja nýrun.
Lungu stjórna nefi.
Nýrun styrkja bein og merg sem svo styrkja lifur.
Nýrun stjórna eyrum.