Tíðnilækningar

Einar Þorsteinn sendi fyrir nokkru frá Berlín sent alþingismönnum hvatningu um að breyta lögum þannig að allar þekktar læknismeðferðir; hefðbundnar sem óhefðbundnar verði leyfðar á vissu landsvæði eða landinu öllu. Fordæmið fyrir slíkum sérlögum segir hann þegar komið með lögunum fyrir ónefnt erfðafræðifyrirtæki í Reykjavík. Fordæmið er einnig orðið að veruleika á Kúbu, þar sem það er varnaraðgerð vegna banns á öllum innflutningi frá Bandaríkjunum. Hafa Kúbumenn dáði út vegna skorts á bandarískum lyfjum, spyr Einar Þorsteinn og svarar: Engan veginn. Þeir eiga þvert á móti mikinn fjölda góðra lækna í dag, sem m.a. starfa víðsvegar um Suður-Ameríku. Komist þessi skipan á hjá okkur, er unnt að bjóða erlendum aðilum uppá ógrynni læknismeðferða sem nú eru bannaðar að ósekju í heimalandi þeirra. Það skapar töluverðar tekjur þegar upp er staðið, og skapar um leið ný viðhorf til heils vísindageira. Þar fyrir utan getur þetta vissulega einnig lækkað heilsukostnað ríkisvaldsins, en þó eru það smámunir miðað við vaxtarbroddinn sem í þessu felst, því slíkt fyrirkomulag myndi einnig hvetja til þróunar enn fleiri meðferða og þar með sköpunar nýrrar þekkingar hugmyndaríkra lækna, sem unnt væri að markaðssetja sem íslenska þróun.

Einar Þorsteinn nefnir tíðnilækningar eða eyðingu sjúkdómsvalda í líkamanum með tíðni sem raunhæft dæmi. "Þetta er samskonar eðlisfræði og þegar tenór tvístrar vatnsglasi með réttum söngtón!" Hann hefur kynnt sér vel allt það nýjasta í svokölluðum orkulækningum - þ.e. lækningum án efnafræði- "en þar er að eiga sér stað mikið tæknistökk, vel undirbyggt vísindum, sem líkja má við tilurð transistorsins og sílíkon-rafrásanna á árunum 1948 til 1978, sem gerðu tölvu- og vefbyltinguna mögulega -veruleika dagsins í dag. Hér er gullið tækifæri fyrir þjóðina til að verða brautryðjandi á heimsvísu", segir Einar Þorsteinn.

Til baka

Póstlisti
Skráðu netfang þitt hér að neðan
 

LJÓS OG HLJÓÐ MUN NOTAÐ TIL LÆKNINGA.

Edgar Cayce.

HERBA EST EX LUCE: PLANTAN KEMUR FRÁ LJÓSINU.

Hans-Heinrich Reckeweg.