Dr. Jarvis fjallar mikið um joð í lýðheilsubók sinni og segir m.a. um búfénað: "Skjaldkirtillinn þarf joð til að mynda mikilvæga hormóna og ef joð vantar knýr heiladingullinn
skjaldkirtil til að afkasta meira sem leiðir til stækkunar hans og annarra sjúklegra breytinga s.s. vanþrif, lélegur ullarvöxtur og lítil nyt. Joð er mest í sjávarlofti og því er joðskortur meiri fjarri sjó og mest inni í landi, einnig í sendnu landi og í rigningatíð vegna útskolunar efnisins úr jarðvegi og þar með úr gróðri. Lágt natríum gildi staðfestir lágt joð. Til að tryggja nægilegt joð á meðgöngutíma er hægt að hafa opið joðglas í fjárhúsinu þannig að það gufi upp smátt og smátt eða með því að pensla því annað slagið á garðabönd eða stoðir. Einnig má setja joð í salt eða saltsteina. Joð er mikið í þangmjöli. Dagsþörf sauðkindar fyrir joð er um 200 mígrógrömm. Sé joð ekki nægilegt fer joð í þvagi niður fyrir 50 mígrógr. á dag og joð í mjólk niður fyrir 8 mígrógrömm í 100 ml. Því dugar að mæla þvag og mjólk til að fá stöðuna".