Það veltur á því hvað veldur þunglyndinu og ef þú þjáist af magnesíumskorti með viðeigandi einkennum t.d. því að fólki finnst það ekki eins og það á sér að vera. Ef þau einkenni breytast við að taka inn Magnesíum. Magnesíum er ekki partur af hefðbundinni meðferð gegn greindu þunglyndi sem getur verið afar erfitt ástand og sem hindrar fólk í að lifa eðlilegu lífi.
Sálfræðistofnun Bandaríkjanna gaf út lýsingu á þunglyndi sem notuð er til greiningar á því og felur í sér m.a. að einstaklingur þurfi að hafa a.m.k. 5 af 9 einkennum sl. 2 vikur sem ekki er hægt að uppfæra á aðra þætti s.s. lyfjatöku, áfall eða sorg. Einkennin eru depurð, áhugaleysi, áberandi þyngdarbreyting, óeðlilegt svefnmunstur, lágt sjálfsmat eða sektarkennd.
Almennt eru þrjár orsakir: efnafræðilegt ójafnvægi í líkamanum, tilhneiging til neikvæðra hugsana og áfallareynsla. Það er sjaldgæft að tengja þunglyndi við einhverja eina orsök því yfirleitt eru margir samverkandi þættir að verki. Erfðaþáttur getur spilað inn í þetta líka en enn hefur ekki verið staðfest að fundist hafi þunglyndisgen í fólki.
Litlar rannsóknir hafa verið gerðar á tengingu magnesíumskorts í fólki og klínísku þunglyndi. Læknar gera almennt ekki prófanir á næringarskorti er þeir greina andlegt ástand fólks. Magnesíumskortur er almennt vel þekktur og orsakar margskonar einkenni s.s. hjartavandamál, vöðvavandamál, krampa og kippi, dofa, kitl og viðkvæmni fyrir ljósi og hljóðum og allir þessir þættir stuðla að depurðartilfinningu.
Dr. Roland Jones sérfræðingur í Háskólanum í Bristol segir að magnesíum spili stóra rullu í boðum milli heilafruma og hvernig heilafrumurnar hafi samband sín á milli. Rannsóknir hans benda til þess að það eigi stóran þátt í því að geyma minningar. Hann segist ekki vita um neinar sannanir fyrir því að magnesíumskortur orsaki þunglyndi en veltir alvarlega fyrir sér að það geti haft áhrif á viðbrögð heilafrumanna.
Jóna Ágústa þýddi og staðfærði.