Remedían Apis

Önnur remedían sem er kynnt heitir Apis (Apis mellifica) og hún er unnin úr býflugunni og drottningunni. Hver er eiginleiki drottningarinnar? Hún er allsráðandi í sinni stöðu, ofboðslega afbrýðisöm og drottnunargjörn. Býflugnastunga orsakar roða, brennandi hita og bólgu. Bjúgur, stingandi verkur. Ef henni er ógnað eða hún trufluð, stingur hún. Þá er hún reið. Móðirin, fljúgandi eggjastokkur. Hægri hliðin, allskyns verkir og eggjastokkavandamál. Líkamlega er hún heit en ekki þyrst en líður betur við þvaglát. Útlimir hennar geta verið klunnalegir, hún rekur sig í og missir hluti. Nýrnavandamál gætu verið til staðar. Vökvaójafnvægi í líkamanum. Ofnæmisviðbrögð eftir flugnabit og þá vill hún kaldan bakstur. Má gefa fólki sem hefur ofnæmi fyrir býflugum. Gigt - öll einkenni gigtar. En býflugan hefur ekki gigt! Lykillinn eru einkennin. Apis kjökrar af engri ástæðu. Vill heita drykki. Henni líður verst kl. 3-4 á daginn. Er viðkvæm fyrir líkamlegri snertingu í þungu dauðu lofti. Þá ertast þær sem hefur áhrif á eggjastokka, nýru og blöðru. Gott er að gefa Apis á breytingaskeiðinu vegna innri spennu, þrýstings, óánægju og vökvaójafnvægis. Þetta er meiriháttar blöðrubólguremedía ásamt Cantharis. Alltaf eins og hún sé að taka síðasta andardráttinn. Ef úfurinn er stór í hálsinum getur Apis mjög líklega dregið úr því. Apis er heit og þyrst. Bjúgur: vökva-ójafnvægi á öllum sviðum. Apis sækir í vínedik. Skoðið þau tengsl við býflugubit því edik dregur úr bruna. Einnig sækir Apis í mjólk og það er líka athyglisvert því mjólkin getur haft græðandi og mýkjandi áhrif á býflugnabit, sérstaklega ef bitið er í kokið.
Þegar fólk brennur af hita og vanlíðan er það gjarnan bending um að það sé ófullnægt og vansælt og ófært um að fá útrás af einhverjum ástæðum.

Til baka

Póstlisti
Skráðu netfang þitt hér að neðan
 

LJÓS OG HLJÓÐ MUN NOTAÐ TIL LÆKNINGA.

Edgar Cayce.

HERBA EST EX LUCE: PLANTAN KEMUR FRÁ LJÓSINU.

Hans-Heinrich Reckeweg.