Hómópatía heimilanna - inflúensa
Nú er hafinn árlegur hræðsluáróður í sambandi við inflúensu og fólk hvatt til að láta sprauta sig. Slíkar sprautur eru ákaflega umdeildar en hinsvegar á hómópatían óumdeilanleg svör við flensu sem öðru. Hér eru nokkrar tillögur um hómópatískar remedíur sem nota má til að fyrirbyggja flensu, aðrar til að nota í bráðatilfellum og enn aðrar til að "hreinsa" upp eftir flensuna. Við fuglaflensu er ekki til remedía sem unnin hefur verið úr “flensunni” þar sem vírusinn hefur ekki breiðst út meðal manna. Við eigum hins vegar remedíur sem hafa verið notaðar með árangursríkum hætti árum saman á öllum stigum flensu. Þær eru áhrifamiklar og öruggar fyrir unga jafnt sem aldna. Ég ætla að nefna nokkur dæmi til að gefa innsýn í hvað hægt er að gera en ráðlegg fólki að hafa samráð við hómópata til að fá persónulegar leiðbeiningar.
Inflúensa er öndunarfærasýking og einkenni sem fylgja gjarnan eru hiti, beinverkir, særindi í hálsi, hósti og stundum magapest. Hún varir í 2-5 daga eða lengur og oftar en ekki er fólk að jafna sig í nokkurn tíma en gera má ráð fyrir að þeir sem eldri eru fái meiri eftirköst en þeir yngri. Því er mikilvægt að þeir sem eru viðkvæmir leiti til fagaðila til að fá meðhöndlun. Heildræn meðferð er best til þess að styrkja ónæmiskerfið.
FYRIRBYGGJANDI REMEDÍUR
Hómópatísk meðferð hefur verið árangursrík í faraldssjúkdómum en það skal tekið fram að enn sem komið er hefur það ekki verið sannað nema með reynslusögum. Besta vörnin að mati hómópata er að hugsa almennt vel um heilsuna og taka fyrirbyggjandi náttúrulyf og fá heildræna meðferð.
Influenzium/Bacillinum 30: Einn skammtur í mánuði yfir vetrarmánuðina til að fyrirbyggja. Ef faraldur er kominn skal taka 1 skammt þrisvar í viku.
Anas Barb 200: Til að fyrirbyggja flensu skal taka einn skammt í mánuði en þegar flensan er að koma í þig skal taka einn skammt á tólf tíma fresti í þrjá daga.
Ars 3: kvölds og morgna. Ars 200 líka 1x.
Thuja 200: vikulega og Gels 30 þrisvar á dag fyrirbyggjandi í faraldri.
Echinacea Ø móðurtinktúra - Echinacea er virk bæði gegn vírus- og bakteríusjúkdómum og er ómetanleg í meðhöndlun hverslags smitsjúkdóma sem og að fyrirbyggja þá og eru þeir þá teknir sjaldnar: 5 dropar daglega og aukið upp í 15 dropa meðan á faraldri stendur. Einnig má nota Echinacea í nokkrar vikur eftir flensu ef einkenni eru viðloðandi.
Hollt og heilbrigt mataræði er nauðsynlegt sem inniheldur mikið af grænmeti og ferskum ávöxtum. Gott fjölvítamín og aukalega C vítamín er einnig gott fyrirbyggjandi.
Influenzinum: er remedía sem gott er að taka fyrirbyggjandi um leið og “ára flensunnar” er komin til landsins.
Aconite: skal taka um leið og einkenni koma fram skyndilega.
Gelsemium: skal taka þegar flensueinkennin koma hægt og mikill hrollur fylgir.
Bryonia: skal taka þegar flensueinkenni koma hægt og öll hreyfing er slæm.
Eupatorium: skal taka þegar miklir bein- og vöðvaverkir fylgja. Ógleði fylgir gjarnan.
Baptisia: skal taka þegar einkennin eru svo slæm að óráð fylgir og ofboðsleg örmögnun.
Ekki góður síðan í flensunni: Margir eiga erfitt með að hrista af sér flensueinkenni s.s. slen, þreytu, einbeitingarskort o.fl. og hómópatían á svar við slíku ástandi:
China: þegar líkamlegir veikleikar eru til staðar, gjarnan eftir mikinn niðurgang, uppköst, svita eða haft mikla útferð.
Influenzinum: ein inntaka nær yfirleitt að hrista flensuna burt.
Kali Phos: þegar andleg, tilfinningaleg, líkamleg einkenni loða við eftir flensuna s.s. depurð, framkvæmdaleysi og slen.
Dæmi um ekki góður síðan í flensunni: Maður sem þekktur var sem rólegur og yfirvegaður fór smátt og smátt að fá kvíðaeinkenni. Hann fór á spítalann og skoðun sýndi hann með óreglulegan hjartslátt en ekki vitað um orsök. Hann fékk allskyns lyf en ákvað svo að prófa hómópatískar remedíur. Hann fór í kinesiologiu-prófun sem sýndi ójafnvægi á coxaccy-vírus sem hefur áhrif á hjartað en hann hafði fengið flensu tveimur árum áður og ekki verið góður síðan þá. Hómópatinn gaf remedíurnar Gelsemium og Berberis sem báðar vinna á vírusum og einkenni mannsins hurfu. – Algengt er að gigtarverkir versni eftir flensu og eru þá notaðar aðrar viðeigandi remedíur.
Fuglaflensa
Ég hef fengið nokkrar fyrirspurnir um hvort hómópatían eigi remedíur gegn fuglaflensu bæði fyrirbyggjandi og líka eftir smit til að vinna á henni. Svar mitt er að við vitum ekki með nákvæmlega um þessa tegund “flensu” þar sem hún er svo ný af nálinni. En þar sem remedíur hafa hingað til gagnast vel í meðhöndlun “venjulegrar flensu” myndi ég ætla að hið sama gilti um þessa tegund. Við eigum til dæmis mjög góða “flensuremedíu” sem heitir Oscillococcinum eða Anas Barb öðru nafni og virkar best sé hún notuð fyrstu 2 sólarhringana og ef flensueinkenni eru enn til staðar eftir þann tíma þarf að gefa remedíu sem passar við þau einkenni.
Til baka