Ofnotkun sýklalyfja

Læknar hafa í fjölmiðlum lýst yfir áhyggjum sínum vegna ofnotkunar sýklalyfja hér á landi.

Karl Kristinsson prófessor í sýklafræði sagði í viðtali á Rás 1 31. janúar 2008 að sýklalyfjanotkun við eyrnabólgu barna hefði aukist um 18% að meðaltali og því væri ekki bara farið að ofnota sýklalyf hér á landi heldur væri verið að nota breiðvirkari lyf en þörf væri á í mörgum tilfellum. Munurinn er sá að breiðvirk lyf drepa margar tegundir baktería en mjóvirk aðeins fáar tegundir. Þegar skotið er út í myrkrið með breiðvirkum lyfjum hefði það meiri áhrif á örveruflóru líkamans, verið væri að raska henni.

Sem dæmi um óþarfa notkun sýklalyfja, ekki bara á Íslandi heldur í allri Evrópu og væri alvarlegt mál, nefndi hann Tetracycla-lyf – Doxicyclin sem er mest notað á unglingsárum gegn unglingabólum. Um er að ræða breiðvirkt sýklalyf sem notað er svo mánuðum skiptir. Afleiðingin er slæm áhrif á örveruflóru líkamans og ástæða til að hafa áhyggjur af aukningu ofnæmis á klasakokkum sem er ígerðasýking og spítalasýking og að þetta þyrfti að skoða betur. Karl sagði að Íslendingar hefðu lægri þröskuld miðað við hin Norðurlöndin og að einnig færi þetta eftir landshlutum, mest væri ávísað af slíkum lyfjum á höfuðborgarsvæðinu. Annað lyf talaði hann um sem væri mikið notað og væri breiðvirkt: Ciprofosisin 1 gegn þvagfærasýkingum þar sem mætti nota mjóvirkari lyf. Afleiðingin: aukið ónæmi gegn þvagfærasýkingum. Einnig talaði hann um að Atriomycin væri notað í langan tíma væri það líklegra til að valda þoli eða ónæmi hjá bakteríunum og ónæmi gegn pneumokokkum sem veldur eyrnabólgu og lungnabólgu hefur aukist mikið. Karl sagði nauðsynlegt að snúa þessari þróun við.
Sigurður Guðmundsson landlæknir sagði í viðtali við Samfélagið í Nærmynd 13. febrúar 2008 að ekki hefði tekist nægilega að sporna við þessari aukningu eða koma henni á lygnan sjó. Fyrir nokkrum árum tókst að draga aðeins úr notkuninni því ákvörðun var tekin um að sýklalyf skyldu ekki  niðurgreidd og einnig stuðlaði umræðan um hættuna á ofnotkun að minni notkun. Hann var spurður að því af hverju vont væri að nota sýklalyf. Svar hans var að sýklalyf væru frábær lyf sem bjargaði fólki frá dauða en með ofnotkun þeirra missa lyfin afl sitt og valda ónæmi. Sigurður var spurður af hverju við Íslendingar ættum erfiðara en aðrar þjóðir með að draga úr sýklalyfjanotkun. Hann sagði það eitthvað í þjóðfélagsgerð okkar, við værum alltaf að flýta okkur, værum óþolinmóð og vildum ekki vera veik. Nefndi hann landshluta í þessu sambandi að mesta notkun væri á suðvesturhorninu, lítil á Vestfjörðum og minnst á Austurlandi. Fólk gerir kröfur og hefur væntingar um bata: "Ég vill bara fá sömu pillu og hann Mummi vinur minn sem kom til þín í fyrradag."
Jóna Ágústa tók saman.

Til baka

Póstlisti
Skráðu netfang þitt hér að neðan
 
Kjarni allra veikinda er í huganum.
Við erum öll eitt, ein meðvitund.
Hvernig við hindrum okkur getur verið orsök sjúkdóma.
Því er nauðsynlegt að sleppa og víkka út meðvitundina.