Jæja, þá er nú sumarið komið með sínum fuglasöng og flugnasuði, þrátt fyrir að en geti brugðið til beggja átta, eins og við þekkjum. Býflugurnar sáust hér fyrir viku og koma þriflegar undan vetri. Og nú hafa heldur betur orðið umskipti í bænum, Hrísey er orðin miðbærinn á Akureyri eftir að Grímseyingar sameinuðust okkur. Allt gott um það að segja, nema, að við vonum að bæjaryfirvöld láti sér ekki detta í hug að færa torgið hingað út til okkar. Við viljum endilega fá að halda í grænu litina eins mikið og hægt er. En sumarið færir okkur fleira en sól, fallega liti, fuglasöng og flugur, líka ,,svínaflensu.” Ja, það er með ólíkindum hvað reynt er aftur og aftur að telja fólki trú um, að hræðilegur heimsfaraldur sé í uppsiglingu. Síðast var reynt að telja okkur trú um svínaflensu heimsfaraldur árið 1976 og greip þá um sig mikil hræðsla. Lyfjafyrirtæki fóru í að finna upp bóluefni og var þá ómældu fé dælt til þeirra frá ríkisstjórnum landa heims og hafa einhverjir grætt vel á því hallærislega upphlaupi. En ekkert varð úr faraldri þá, frekar en 1986 þegar hin hræðilega Hong Kong flensa átti að verða að heimsfaraldri, en lyfjafyrirtæki og fleiri mökuðu krókinn á ný. Og ekkert varð heldur úr fuglaflensunni 2003, en 257 manneskjur hafa látist úr þeirri skæðu pest síðan hún fór á kreik, en margfalt fleiri hafa hins vegar látist af fuglaflensu sprautunni. Merkilegt. En áfram eru einhverjir að maka krókinn. Vestur Nílar vírusinn er enn eitt fyrirbærið, en reynt hefur verið í mörg ár að telja Bandaríkjamönnum og jafnvel fleirum, trú um að heimsfaraldur væri í uppsiglingu á honum. Og enn eru einhverjir að maka krókinn. Reynt er að hræða fólk, sem verður til þess að það kaupir hinn og þennan óþarfa varning og fer þar mest fyrir kaupum á vörum tengdum lyfjafyrirtækjum. Hvað gerðist ekki hér hjá okkur? Andlitsmaskar, spritt og fl. seldist upp, svo ekki sé nú talað um þessar, að ég tel, gagnlausu flensusprautur, Tamiflu og Relenza, sem lyfjafyrirtæki og lyfjaverslanir verða auðvitað að losna við. Um 3000 þúsund manneskjur látast í heiminum úr Malaríu daglega, og er talað um faraldur þar? Nei. Það kallast, viðvarandi heilsuvandamál. Talið er að um 36.000 þúsund manneskjur látist árlega úr þessum venjulegu flensum í Bandaríkjunum, er talað um það sem faraldur? Nei, það er bara eðlilegt. Öruggar heimildir herma, ekki frá opinberum aðilum, að 7 manneskjur hafi líklega látist í Mexico úr A(H1N1 þó er það ekki fullyrt. Svo er nú það fyndna, að þessi svokallaða ,,svínaflensa” núna, á lítið sameiginlegt með svínum, alla vega hefur hún aldrei greinst í þeim né neinum öðrum dýrum. Venjuleg flensa í svínum er veira er veldur sýkingu í öndunarfærum svínanna og er komin af þessum venjulega flensustofni A. Þetta vírus afbrigði sem nú er í gangi heitir A(H1N1 og er nýtt afbrigði af H1N1 sem er sá vírus sem veldur árstíðaflensum í fólki. Þetta afbrigði, A(H1N1 hefur aldrei áður fundist, hvorki í mönnum né dýrum og er talið nokkuð víst, að hann hafi ekki sprottið upp á náttúrulegan hátt. Þessi nýi vírus samanstendur af, fuglaflensu vírus frá norður Ameríku, flensuvírusum sem herja á okkur mennina árstíðabundið, svínaflensuvírus frá Evrópu og svínaflensu afbrigði frá Asíu. Ef þessi vírus hefði átt að geta komið upp á náttúrulegan hátt, hefði það þurft að gerast á eftirfarandi hátt: Sýktur fugl í norður Ameríku hefði þurft að sýkja svín í Evrópu, svínið umbreytir síðan vírusnum lítillega og sýkir fuglinn aftur nýju afbrigði, sem hann verður síðan að fara með til Asíu og sýkja svín þar, sem verður enn að endurskapa vírusinn og smita fuglinn enn einu sinni, sem verður síðan að fljúga með hann heim til Mexico og smita svínin þar, sem gera vírusinn þannig úr garði að hann geti smitað manneskjur, sem síðan verða þá að komast í snertingu við Asíu-svín, í Mexico. Ég veit vel að þetta er nokkuð langsótt og líka ótrúlegt, en svona verður þetta víst að gerast, ef það á að standast, að vírusinn hafi allt í einu sprottið upp úr þurru í Mexico. Margir álíta hins vegar að svona ætli einhverjir að bregðast við kreppunni hjá sér, en Ástralskt dagblað sagði t. d. frá því þannig, að ef við gæfum okkur að um 1,4 milljónir manna myndu nú látast úr þessari ,,svínaflensu,” myndi það hafa efnahagslega bætandi áhrif upp á einar 5 TRILJÓNIR Bandaríkjadala. Svo er nú það. H1N1 vírusinn er afkomandi vírussins er olli heimsfaraldri og gríðarlegum dauða víða um heim árið 1918 Ástæðurnar fyrir því að sprautur duga ekki, eða afar lítið að minnsta kosti, við flensu-vírusum, er vegna breytinga er verða á vírusunum frá ári til árs og því eru auðvitað engar sprautur til við þessum nýja vírusstofni frekar en öðrum. En það er mikill iðnaður í kringum framleiðslu á bóluefni og hægt að græða mikla peninga á slíku. Hélduð þið að útrásarbólutíminn væri alveg liðinn í heiminum? O, ekki aldeilis. Það finna alltaf einhverjir eitthvert horn, að líta í. Það hræðir auðvitað milljónir manna um heim allan, að ekki verði til bóluefni sem gagnast, nógu snemma, áður en auglýst mannfall verður mikið í heiminum, en fjóra til sex mánuði er talið að þurfi í lágmark til að framleiða bóluefni og þá spyr maður sig, þarf ekki líka tíma til að prófa efnið áður en það verður notað á manneskjur? Eðlilegri tími er því líklega eitt og hálft til tvö ár, eða svo. Vísindamenn komust að því, að þeir sem létust í faraldrinum1918 hafi verið veikir í viku til 11 daga og að það bendi til bakteríu-sýkingar. Og þessir sömu vísindamenn hafa nýlega gefið út þá niðurstöðu að þeir sem létust, hafi einmitt fengið bakteríusýkingu ofan í vírusinn, sem leiddi til Streptokokka lungnabólgu, sem hafi valdið þeim dauða, en ekki flensuvírusinn sem slíkur. Fólk sem veikist af vírus, fær stundum það sem kallað er, "superinfection" og er það af völdum baktería, eins og t. d. Streptokokkum. Fólk heyrir stundum talað um slæmar hálsbólgur, sem eru einmitt af þeirra völdum. Í dag eru til ágætis lyf sem vinna á þeim, en voru ekki til 1918 og því fór sem fór. Fjöldi vísindamanna segir, að aldrei aftur geti gerst það sem gerðist 1918 vegna þeirrar vitneskju og þess skilnings sem menn hafi í dag á því sem þá gerðist. Við megum því ekki láta hræða okkur til kaupa á hreinum óþarfa, heldur halda ró og sinna okkar störfum eins og ekkert hafi í skorist, enda hefur ekkert ískorist.
Með heilsukveðjum frá Hrísey.
Aðalsteinn Bergdal.