Skólabjallan kallar

Í skólanum í skólanum er skemmtilegt að vera . . .

Nú safnast börnin í leikskólana og skólana og það á að vera tilhlökkunarefni. En það sem mörgum foreldrum þykir hinsvegar kvíðvænlegt er að þá stinga sér líka niður allskyns pestir. Hvað er til ráða? Er hægt að gera eitthvað til að fyrirbyggja þetta?

Svar mitt er að gefa börnum heildræna meðferð í upphafi skólaárs – sem þýðir ein til fjórar inngjafir af remedíum og svo er gott að endurtaka þetta ársfjórðungslega. Slík meðferð styrkir og eflir ónæmiskerfi barnsins.

Njálgurinn stingur sér niður á þessum tíma og þá mæli ég með að börnin fá lime í vatnið, graskersfræ sem snakk og að hvítlaukur sé notaður í matinn því allt þetta fyrirbyggir sníkjudýr í þörmum. Ef barnið er þegar komið með njálg er gott ráð að setja einn Lavenderdropa í vaselín og bera á endaþarminn fyrir svefninn.

Foreldrum er boðið upp á að spyrja spurninga og þeim verður svarað hér á síðunni.

Til baka

Póstlisti
Skráðu netfang þitt hér að neðan
 

LJÓS OG HLJÓÐ MUN NOTAÐ TIL LÆKNINGA.

Edgar Cayce.

HERBA EST EX LUCE: PLANTAN KEMUR FRÁ LJÓSINU.

Hans-Heinrich Reckeweg.