Hollráð og fleira

Eplaedikið frá Aspall er lífrænt og því best.
Gott fyrir röddina, bólgur o.fl.
Mæli með að þú setjir í soðið vatn: Engiferrót (gott að eiga hana ferska í frysti og skrapa í sjóðandi vatn eftir þörfum), settu í þetta hvítlauk og sítrónu og/eða lime. Dreyptu á þessu yfir daginn.
Mæli líka með Eplaediki (Aspall) 1 msk. í 1 glas af vatni tvisvar á dag - mátt líka setja eplaedikið í sítrónu/engifer
vatnið.
Það er mikilvægt að passa upp á sýrustig líkamans á að vera 7,4 - að borða basískt fæði er því ráðlegt.
Sveppasýking:
Ráð: Saltvatn (drepur) og edikvatn (byggir upp). Láta fæturna liggja í þessu. Einnig má nota eplaedik innvortis með því að setja msk. í glas og fylla með vatni.
Sixtuwohl: (krem) Fyrir sveppi og þreytta fætur.
Sveppir lifa ekki í súrum líkama heldur í basískum líffærum. Sprautið AB mjólk eða súrmjólk upp í leggöngin. Eini sítrusávöxturinn sem almennt er í lagi að borða eru sítrónur og rjómaostur er besti osturinn.
Pirrandi hósti og slímuppgangur:
Hörfræte róar í pirrandi hósta og slímuppgangi í lungnabólgu, niðurgangi og meltingartruflunum s.s. ristilbólgu, erfiðum þvaglátum og annarskonarb ólgusjúkdómum. Takið 1 únsu af hörfræjum 1/2 oz Liqorice rót skorin í sneiðar og bætið í þetta tæpum lítra af soðnu vatni og látið á hlýjan stað í 40 mín. Hellið af og takið hálfa tsk. Eins og oft og þörf er á. Sítrónusneiðar og sykur er líka viðeigandi.
Eyrna- háls- brjóstsýking:
Laukurinn kemur alltaf að gagni í hverslags eyrna- háls- brjóstsýkingu, skerðu hann til helminga og settu hann við rúmið yfir nótt. Líka er gagnlegt að sjóða lauk í mjólk og borða fyrir svefn því hann dregur úr slími. Skerðu lauk og settu hann í pott með hunangi og sé það ekki til skaltu nota brúnan sykur og hvítan eingöngu sé ekkert annað í boði. Lauksafinn blandast hunanginu og úr verður frábær hóstamixtúra sem má taka eftir þörfum. Óþarfi er að borða laukinn eingöngu safann sem brýtur á hvimleiðum hósta og örvar slímuppgang. Taktu smádýfu af lauknum settu í heitt vatn og settu svo í ytra eyrað. Hér má líka nota hvítlauk sem mun deyfa verk og draga úr bólgu.
Gamalt húsráð frá Bretlandi er að rista þykka brauðsneið og hella ediki yfir hana, setja hana í gamlan sokk og breiða hann utan um hálsinn.
Ólífuolían er notuð til margra hluta í Miðjarðarhafslöndunum og eru lækningaeiginleikar hennar vel kunnir. Ólífurnar eru kramdar og settar í gamlan sokk og settur utan um sáran háls eða settur inn í bakstra. Börn eru gjarnan böðuð upp úr volgum olífuklútum sérstaklega ef þau eru lítil undir vigt eða veikburða á einhvern hátt.
Timian bað í öndunarfæravandamálum: Taktu 5 tsk. af þurru eða fersku timian og settu í hálfan lítra af soðnu vatni og látið vera þar í 5 mín. Látið drjúpa í bað eða fótabað eða skál til innöndunar. Timian gufan mun draga úr hverslags krampa í lungunum sem kemur sér vel í astmakasti, léttir mjög á hverslags brjóstverk eða erfiðum hósta. Fólk fer gjarnan að svitna mikið eftir þetta og sofnar svo vært á eftir. Frænka mín notaði þetta á son sinn árum saman og hann notar engin lyf í dag meðan frændur hans sem áttu við sama vandamál að stríða eru nú krónískir astmasjúklingar og þurfa innöndunarstera.
Sinnepsbað í kvefi, hitavellu og sérstaklega ef verkjar í vöðva og liði eftir erfiðan vinnudag í vinnu puð í garðinum eða í hestamennskunni. Taktu 2 væn handfylli af Coleman’s sinnepsdufti og hrærðu því í eins heitt baðvatn og þú þolir. Svo skaltu liggja í vatninu og láta hitann af sinnepsduftinu draga út hitann í líkamanum. Þurrkaðu þér með heitu handklæði og farðu strax í hlýtt rúmið. Þetta virkar sérstaklega ef þú hefur ofreynt þig og vöðvarnir eru stífir og verkjar í þá.
Hósti eða ofnæmi
Gott að lemja á hóstakirtil (milli brjósta með flötum hnefa) 7-14-21 sinni og hósta við hvert bank. Þetta örvar kirtilinn þegar ofnæmi er eða hósti.
Gott við hósta: Sítróna soðin í 10 mín. Pressið safann. 2 tsk. glycerín hrært vel í vatni, hunang sett út í.
Mýkir hálsinn: Hella lífrænu hunangi yfir niðursneiddan lauk, plastfilmu yfir og 12 klst. síðar hefur myndast vökvi sem mýkir og taka eina og eina teskeið með jöfnu millibili.
Hægt er að útbúa hóstasaft með því að sjóða eina sítrónu við hægan hita í 10 mín. (þetta gefur meiri safa), sítrónan er síðan pressuð og safinn látinn í glas og settar í 2 msk. af glyserínu, hrært vel og glasið fyllt með hunangi. Þessi blanda er talin mjög góð við þrálátum hósta og síðan tekið inn eftir þörfum, en hrærist vel fyrir inntöku.
Hunangsvax - Propolis
Hunangsvaxið eða hunangskakan er mjög gott við kvillum í öndunarfærum. Það eru vaxhylkin sem eru tuggin í u.þ.b. 15 mín. Þetta verkar mjög róandi á slímhúð öndunarfæranna og hefur m.a. reynst vel við ýmiss konar nefstíflu, bólgum í ennis- og kinnholum og þá er tugginn biti af svipaðri stærð og tyggigúmmí í 15 mín. á klst. fresti fjórum til sex sinnum á dag og tuggunni síðan fleygt. Til þess að forðast kvef og inflúensur er gott að tyggja tuggu af kökunni daglega allan veturinn þ.e. frá byrjun október til júníloka auk þess að neyta hollrar fæðu og taka 2 tsk af hunangi með hverri máltíð.
Til baka