Kristín Sigurðardóttir, nuddari og íþróttafræðingur hefur hafið störf að nýju. Hún býður upp á heilsunudd sem er bland af því besta í nuddinu. Heilsunudd nær yfir margar mismunandi nuddaðferðir til dæmis það sem kallað hefur verið klassískt nudd, íþróttanudd, heildrænt nudd og svæðameðferð. Þar sem ástand fólks er mismunandi fer best á því að sníða tímalengd nuddmeðferðar að þörfum hvers og eins.
"Ég útskrifaðist frá Háskólanum í Reykjavík árið 2008 með Bsc gráðu í íþróttafræðum frá Lýðheilsudeild. Ég er einnig stafagönguleiðbeinandi frá ÍSÍ. Ég starfaði við kennslu í eitt ár í Brúarskóla eftir útskrift. Ég hef sótt fjöldann allan af námskeiðum er tengjast sjálfsrækt.
Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á heilsu og hreyfingu. Var keppnismanneskja í körfuknattleik í mörg herrans ár og hef unnið alla titla sem voru í boði með mínum liðum og einnig keppt fyrir Íslands hönd á Ólympíuleikum Smáþjóða.
Ég lærði nudd hjá Börgu Ólafsdóttur árið 1998, og hef starfað með smá hléum frá '98 – 2011. Ég eignaðist tvö börn árið 1999 og 2002. Ég starfað m.a. í Jóhannesarborg sem nuddari.
Ég lærði blómadropaþerapíu hjá Kristbjörgu Kristmunds árið 2003 og hef notað blómadropa í nuddmeðferðum með góðri raun. Ég hef tekið eitt námskeið af tveimur í tónhvíslaheilun og hef líka blandað henni saman við nuddið. Þannig hef ég með reynslu minni þróað minn stíl ef svo má segja!
Verið hjartanlega velkomin."
Kristín Sigurðardóttir s. 693-2469