Með vaxandi ásókn í óhefðbundnar meðferðir aukast kröfurnar um að fólk geti gengið að þeim vísum. Þótt margt hafi verið skrafað og skrifað um óhefðbundnar meðferðir liggja ekki fyrir nægar rannsóknir á eðli margra þeirra og áhrifum til þess að þær liggi ekki vel við höggi í vísindalegri umræðu um heilbrigðismál og heilsufrelsi.
Sagan öll – óhefðbundnar meðferðir látnar standa fyrir máli sínu heitir bók eftir Toby Murcott, þar sem hann kortleggur meðferðaheiminn og freistar þess að komast til botns í honum. Hann leiðir fram fjölda vitna, með og á móti, og úr framburði þeirra vinnur hann greinargerð sem sýnir m.a. að heildrænar óhefðbundnar meðferðir eiga ýmislegt til, sem gagnast í baráttunni við plágur nútímans, sem hefðbundnar meðferðir virðast duga illa gegn.
Hann gaumgæfir ýmsar þekktar rannsóknaaðferðir og bendir á, hversu erfitt það getur verið með þeim aðferðum sem við kunnum nú bestar að rannsaka alla hluti óhefðbundinna meðferða til hlítar, þótt niðurstaðan blasi við í betri líðan fólks. Þessa rannsóknaerfiðleika þarf að yfirstíga með nýjum aðferðum. Þær þurfa að endurspegla það sem býr í óhefðbundnum meðferðum svo þær teljist fullgild atkvæði í heilsufrelsi, sem lætur sér ekki nægja trúna á lifandi vitnisburð heldur krefst líka vísindalegrar tölfræði.
Bókin er vel unnin og gefur glögga mynd af viðfangsefninu. Hún er vel skrifuð, þótt léttleikanum sé sjaldnast fyrir að fara. Höfundurinn skrifar pistla um óhefðbundnar meðferðir í The Times.
(Toby Murcott:The whole story – Alternative Medicine on Trial? – Macmillan 2005).
© Heilsuhöndin 2008.