Remedían Aconite

Fyrsta remedían sem er kynnt heitir Aconite (Aconitum napellus). Hún er mest notuð sem fyrsta remedía í atburðum sem gerast skyndilega og sérstaklega ef þeim fylgir panik, skelfing, dauðaótti, eirðarleysi.

Aconite er eins og stormur, sem gengur skyndilega yfir. Litla barnið leikur sér úti í góða veðrinu en allt í einu lækkar hitastigið, barnið er önnum kafið við að leika sér, tekur ekki eftir því að það hefur kólnað fyrr en eftir tvo tíma að það er allt í einu  að drepast úr kulda. Fer í rúmið og byrjar að titra og skjálfa, hrætt, ofboðslega eirðarlaust, hár hiti, þurr hás geltandi hósti, gerist af miklum krafti. Það sem er augljóst varðandi Aconite er þetta mikla eirðarleysi, þessi mikli ótti, hár hiti, erfitt að anda. Svo kraftmiklir og svo ofboðslegir verkir. >í kulda, að verða kalt, í raka. Líkaminn er þurr og heitur, <í þurrk. Það sem sérstaklega einkennir Aconite er að fólk vill hafa raka. Fæstir vilja hafa raka nema orkumikið fólk sem þolir ekki mikinn hita, vill fremur rakann. Aconite-persónan er sterk, verður sjaldan veik, en ef hún verður það, verður hún mjög hrædd við veikindin. Þjáist, er að deyja. Þetta var ágætt líf, dregur niður gardínurnar, en nú er það búið og ég kveð sáttur! Týpísk Aconite manneskja.

Stúlka sem var algerlega lömuð af ótta við að fara á skíði og Aconite tekur panik í burtu. Skyndilegur hjartsláttur. Þú panikast, getur ekki andað. Hef ekki verið góð síðan í slysinu. Segjum að eitthvað komi upp sem minni á það sem gerðist fyrir mörgum árum og þú færð sjokk. Það er Aconite. Annars eru margar sjokkremedíur til. Sumir taka Aconite áður en þeir fara í flugvél. Af hverju, af því að þú ert lokaður inni, kemst ekki út. - Þú hefur enga stjórn. Aconite er gefin í upphafi sjúkdóma. Ofboðslegt panik, sjokk. Í byrjun flensu, skyndilegur hósti, einkennir allt raunverulega sem gerist skyndilega. Bráðahjartatilfelli o.s.frv.

Til baka

Póstlisti
Skráðu netfang þitt hér að neðan
 

LJÓS OG HLJÓÐ MUN NOTAÐ TIL LÆKNINGA.

Edgar Cayce.

HERBA EST EX LUCE: PLANTAN KEMUR FRÁ LJÓSINU.

Hans-Heinrich Reckeweg.