Áhugaverð ljóð um mátt hugans

Þetta ljóð eftir Steingrím Thorsteinson fékk ég hjá Ragnhildi Valdimarsdóttur og hún segir:

"Steingrímur er árið 1880 nýfluttur til Íslands eftir langa veru í Danmörku og svo segir í ævisögu hans: "Hér er hans rétti staður, hér sagðist hann "elska flest" og "una bezt" og hann vissi að lifshamingjunnar væri óþarft að leita í fjarlægum löndum."

Þér finnst allt bezt, sem fjærst er,
þér finnt allt verst, sem næst er;
En þarflaust hygg ég þó.
Að leita lengst í álfum,
vort lán býr í oss sjálfum
í vorum reit, ef vit er nóg.

-----------------------------------

(Höfundur er ókunnur að þessu ljóði en það fékk ég líka frá Ragnheiði Valdimarsdóttur.)

Hafðu gát á hugsun þinni
hugurinn ýmsu valda má
býr þar hulin orka inni
áhrif skapa til og frá.
Afleiðingarnar af því ber
öðrum bæði og sjálfum þér.
Þessi mikli máttur veldur
miklu meir en fólkið heldur.
---------------------------------------------------------

Eftirfarandi ljóð sem er eftir ókunnan höfund fékk ég að gjöf skrautritað og innrammað og les reglulega.

Hamingjan er eitthvað sem í huga okkar býr.
Enginn leyndardómur sem að kraftaverkum snýr.
Það er að vakna á morgnana og hefja dagsins störf og gleðjast yfir lífinu og sinna hverri þörf.
Forðast slæmar hugsanir er skapa svarta mynd vinna að sínu verki og teyga úr lífsins lind.
Forðast þess að óska sem við eigum ekki að sjá.
En nýta sína hæfileika og takmarki okkar ná.
Við eigum öll að framkvæma sem okkur ætlað er.
Og bestu launin eru að finna hamingjuna hjá sér.

Til baka

Póstlisti
Skráðu netfang þitt hér að neðan
 
Kjarni allra veikinda er í huganum.
Við erum öll eitt, ein meðvitund.
Hvernig við hindrum okkur getur verið orsök sjúkdóma.
Því er nauðsynlegt að sleppa og víkka út meðvitundina.