Kínversku fræðin leggja áherslu á viðhald góðrar heilsu, minna eða ekkert er talað um sjúkdóma. Taóismi kennir að til þess að eldast heill á sál og líkama sé mikilvægt að vera í takt við þá alheimsorku sem stjórnar árstíðunum á jörðinni og stýrir mismunandi lífsskeiðum okkar gegnum lífið. Í gamla Kína var reiknað með að fólk lifði um og yfir 100 ár við góða heilsu væri farið eftir náttúrulögmálunum og lifað í samræmi við þau. En ef lifað er á skjön við lögmálin, brennum við hraðar upp, líkt og kerti við opinn glugga. Ég ætla nú að fjalla um þessi mál eftir bestu getu og tek núna fyrir vatnselementið en hvet áhugasama til þess að fá sér bækur, skoða teikningar af elementunum, útbúa stórt blað á vegg og teikna allt inn á það og hafa fyrir augunum og stúdera
Elementin eru fimm og hvert og eitt hefur sína árstíð. Við getum skoðað lífið sem ferli eða ferðalag í gegnum þessi fimm element. Vorið: viðarelement, þegar lífið vaknar, fullt af þrótti og orku, æskan, tímabilið er ca. mars/apríl/maí - Sumarið: eldselement, allt er í fullum vexti og blóm að springa út, unglingsárin, gelgjan, tímabilið er ca. maí/júní/júlí - Síðsumar: þegar ávextir ná fullum þroska, fullorðinsárin, fjölskyldumyndun, barnsfæðingar, tímabilið er ca. júlí/ágúst/sept. Haustið: jarðarelement, þegar uppskerunni er safnað saman og komið í hús. Næði til að leita inná við og flokka það sem máli skiptir, að greina kjarnann frá hisminu, uppgjör, breytingaskeiðið, tímabilið er ca. sept./okt./nóv. Veturinn: vatnselement: það ríkir kyrrð í náttúrunni, elli og viska, við sjáum allar hliðar málanna. Þetta er mikilvægasta elementið, rótin, móðurlífið. Einmitt núna þegar við erum í vatnselementinu er ekki gott að fasta því við þurfum á vökvunum að halda. Ef eitt element er í ójafnvægi hefur það áhrif á hin, dæmi ef nýrun eru léleg slökkva þau eldinn svo afleiðingin getur orðið t.d. blóðþrýstingshækkun. Nýrun styrkja bein og merg, þau hafa tengsl við eyru, óttatilfinningu, fólk stynur gjarnan ef þarna er ójafnvægi og því er kalt og það verður bogið í baki. Það er ótti og verkkvíði. Þörf er á salti og æskilegt að nota gerjað salt eins og misotamari-umeboshi og nota meira þang. Nota skal baunir og Adukibaunir eru sérlega góðar fyrir nýru/blöðru, að sjóða þær með þangi gerir mikið gagn á allar innvortis bólgur. Nota skal meira bóghveiti og best er að rista það fyrir notkun, hvort sem það er soðið, notað í brauð en mjölið er gott í bakstur. Bóghveiti dregur út of mikið vatn í líkamanum og er gott að hræra út og smyrja á fótleggi til að ná út vökva. Nota skal meira af dýraafurðum sérlega fisk á veturna. Te eru m.a. engiferte (þó allsekki fyrir háþrýstingsfólk), birkite, Mu te sem eru 16 harðgerðar jurtir mjög hitagefandi og styrkjandi. Elfting er mjög styrkjandi, dregur úr bjúg, styrkir öll líffæri í mjaðmagrindarholi og við flestum sjúkdómum sem herja á nýrun eins er hún styrkjandi fyrir lungun og ónæmiskerfið.
Jóna Ágústa tók saman úr fyrirlestrum m.a. frá Erni Jónssyni, Þuríði Hermannsdóttur, Dagmar Eiríksdóttur. Í næstu viku fjalla ég um yin og yang og tímaklukkuna. En mundu að núna erum við í vatnselementinu og njótum þess bara í botn!!!